Fréttir
28. nóvember 2019Fjöldi fólks lagði leið sína í Hörpu fimmtudaginn 21. nóvember síðastliðinn til að ljá mannréttindabaráttunni nafn sitt og upplifa tilkomumikla gagnvirka ljósainnsetningu sem hönnuð var til að vekja athygli á árlegri, alþjóðlegri herferð Amnesty International. Innsetningin hefur nú verið flutt úr Hörpu í Kringluna.
Herferðin gengur nú undir nýju kjörorði Þitt nafn bjargar lífi en er sem fyrr ætlað að styðja við þolendur mannréttindabrota víðs vegar um heiminn. Í ár beinir herferðin sjónum sínum að ungu fólki undir 25 ára sem beitt er hrikalegum órétti en rís engu að síður margt hvert upp gegn kúgun, ójöfnuði og ofbeldi og berst fyrir betri heimi. Málin í ár eru tíu talsins og lúta m.a. að lögregluofbeldi, þvinguðum mannshvörfum, dauðarefsingu, fangavist vegna aðstoðar við flóttafólk og táknrænum mótmælum fyrir réttindum kvenna.
3290 undirskriftir söfnuðust á fyrstu dögum ljósainnsetningarinnar í Hörpu til stuðnings ungmennunum.
Gestum gafst kostur á að taka þátt í ljósainnsetningunni með því að skrifa undir málin á spjaldtölvu á staðnum, stíga inn í aðstæður þolenda mannréttindabrota og stöðva brotin á táknrænan hátt með undirskrift sinni og skuggamynd.
Þetta magnaða sjónarspil hefur nú verið sett upp í Kringlunni og getur fólk sem þar á leið um því lagt sitt lóð á vogarskál mannréttindabaráttunnar til stuðnings ungu fólki víðs vegar að úr heiminum.
Ljósainnsetningin stendur yfir í Kringlunni, á annarri hæð á móti Bónus, frá 27. nóvember til 12. desember á eftirfarandi tímum:
27.nóv 15:30-18:30
28.nóv 18:00-21:00
29.nóv 17:00-21:00
30.nóv 12:00-15:00
1.des 12:00-15:00
2.des 15:30-18:30
3.des 15:30-18:30
4.des 15:30-18:30
5.des 18:00-21:00
6.des 16:00-19:00
7.des 12:00-15:00
8.des 12:00-15:00
9.des 15:30-18:30
10.des 15:30-18:30
11.des 15:30-18:30
12.des 18:00-21:00
Ungt fólk telur til 3.1 milljarðs mannkyns eða 42% íbúa heimsins og er stór hluti þess í suðurhluta heimsins. Oftar en ekki verður það einna verst fyrir áhrifum óréttlætis og upplifir af fyrstu hendi vægðarlaus mannréttindabrot. Ungt fólk horfir upp á samfélag sitt sundurtætt vegna fátæktar, ójöfnuðar, mismununar eða spillingar og finnur sig tilknúið að rísa upp gegn þessum öflum. Margt af þessu unga fólki er víða í forystu um að leiða fram breytingar hvort sem það á við um loftslagsréttlæti, bætt réttindi kvenna, baráttuna gegn húsnæðisleysi eða afhjúpun lögregluofbeldis.
Víða reyna valdhafar að sópa þessu unga fólki í burtu með áreitni, árásum eða jafnvel fangelsun.
Fylkjum okkur að baki ungu fólki, styðjum það og veitum því styrk til að halda áfram að bjóða valdhöfum birginn og krefjast réttlætis. Settu nafn þitt á bréf til stjórnvalda sem fótumtroða mannréttindi þeirra.
Fáar þjóðir hafa sýnt herferðinni Þitt nafn bjargar lífi jafn mikinn stuðning og Íslendingar en nærri 3% þjóðarinnar tóku þátt árið 2017 og rúmlega 2% á síðasta ári. Það er mun hærra hlutfall miðað við höfðatölu en annars staðar. Alls söfnuðust tæplega 80.000 undirskriftir fyrir tíu mál í fyrra og þar af rúmlega 60.000 á vefsíðu okkar. Í ár stefnum við að því að ná 100.000 undirskriftum og þar af 70.000 á vefsíðunni.
Jákvæðar breytingar hafa orðið í tengslum við fimm af tíu málum sem tekin voru fyrir í fyrra til stuðnings baráttukonum fyrir mannréttindum. Hér má lesa um hvernig þátttaka fólks hefur áhrif.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu