SMS

30. júlí 2019

Argentína: Stöndum með fólkinu sem berst fyrir afglæpa­væð­ingu þung­un­ar­rofs

Glæpa­væðing þung­un­ar­rofs kemur ekki í veg fyrir að fólk sæki sér slíka þjón­ustu heldur gerir hana einungis mun óöruggari. Í Argentínu, eins og mörgum öðrum löndum, er þung­un­arrof refsi­vert nema í undan­tekn­ing­ar­til­fellum.

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.

Fólk sem getur ekki haldið meðgöngu áfram eða vill binda enda á þungun er oft neytt til að taka óhugs­andi ákvörðun um annað­hvort að setja líf sitt í hættu eða fara í fang­elsi. Vegna þessa eru hálf milljón einstak­linga í hættu árlega í Argentínu vegna skorts á aðgengi að öruggu og löglegu þung­un­ar­rofi.Frá árinu 1983 hafa meira en 3.000 einstak­lingar dáið vegna þung­un­ar­rofs.

Í Tucamán-héraði var 11 ára stelpu neitað um rétt sinn um þung­un­arrof eftir að hafa verið nauðgað af sambýl­is­manni ömmu sinnar. Þegar hún leitaði á spítala til að binda enda á þung­unina bar heil­brigð­is­starfs­fólki skylda til að vernda líf hennar og heilsu. Hins vegar var hún ítrekað hindruð í því og henni neitað  um réttinn til þung­un­ar­rofs.

SMS-félagar standa með fólkinu í Argentínu sem berst fyrir aðgengi að öruggu og löglegu þung­un­ar­rofi.

Í febrúar síðast­liðnum þurfti stúlkan að gangast undir neyð­ar­keis­ara­skurð­að­gerð sem auðveld­lega hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Þess í stað var hún beitt grimmi­legu órétt­læti sem olli henni gífur­legum skaða á líkama og sál.

Þetta hörmu­lega mál er sönnun þess að breyt­inga er þörf á þessum harka­legu refsi­lögum í Argentínu!

Lestu einnig