SMS

30. mars 2021

Bangla­dess: Gefum Róhingjum rödd

Næstum ein milljón Róhingja býr í niður­níddum flótta­manna­búðum í Cox Bazar í Bangla­dess eftir að hafa flúið heimili sín í Mjanmar vegna glæpa hersins gegn mann­kyninu. Þessir glæpir eru nú til skoð­unar hjá Alþjóða­dóm­stólnum í Haag.  

Kórónu­veirufar­ald­urinn hefur gert aðstæður Róhingja í flótta­manna­búðum enn þung­bærari. Aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu er skert vegna tungu­mála­örð­ug­leika, slæmrar meðferðar frá heil­brigð­is­starfs­fólki og vöntun á upplýs­ingum um heil­brigð­is­þjón­ustu sem þeim á að standa til boða. 

Taktu þátt í starfi Amnesty og skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér!

Fleiri en 100 Róhingjar hafa verið teknir af lífi án dóms og laga frá árunum  2017 – 2020 samkvæmt mann­rétt­ind­ast­am­tök­unum Odhikar í Bangla­dess.

Flótta­fólk hefur greint frá því að gadda­vírs­girð­ingar kringum búðirnar geri líf fólks erfiðara fyrir og er stór­hættu­legt í elds­voðum. Þúsundir Róhingja hafa verið þving­aðir til Bhashan Char, afskekktrar sand­eyju í Bengal-flóa en yfir­völd ætla að flytja um 100 þúsund einstak­linga á eyjuna.

Framtíð næstum hálfrar millj­ónar Róhingja barna er döpur en þau fá nánast enga menntun. Árlega leggur fjöldi Róhingja á sig hættu­legar báts­ferðir frá Bangla­dess til nærliggj­andi landa í von um betra líf frá erfiðum aðstæðum.

 

Í áratugi hefur Róhingjum í Mjanmar verið neitað um ríkis­borg­ara­rétt, ferða­frelsi og aðgengi að menntun, störfum og heil­brigð­is­þjón­ustu. Stjórn­völd í Bangla­dess geta vald­eflt þennan hóp með því að gefa þeim rödd og virða mann­réttindi þeirra.   

SMS-félagar krefjast þess að stjórn­völd í Bangla­dess leyfi Róhingjum að taka þátt í ákvarðanatöku sem snýr að þeirra eigin lífi til að tryggt sé að mann­rétt­indi þeirra séu vernduð

 

Lestu meira um Róhingja hér

Lestu einnig