SMS
27. júní 2019Íbúar Hong Kong hafa af hugrekki mótmælt fyrirhuguðu lagafrumvarpi þrátt fyrir ofbeldi lögreglu. Verði frumvarpið samþykkti eiga íbúar Hong Kong á hættu að verða framseldir til meginlands Kína og sæta þar illri meðferð.
Ef fyrirhugaðar breytingar á lagafrumvarpinu verða samþykktar verður heimilt að framselja einstaklinga frá Hong Kong til meginlands Kína. Lagafrumvarpið myndi auðvelda kínverskum yfirvöldum að herja á gagnrýnendur stjórnvalda, mannréttindasinna, blaðamenn, starfsmenn frjálsra félagasamtaka og almenna borgara í Hong Kong. Í réttarkerfi meginlands Kína eru pyndingar, óréttlát málsmeðferð, mannshvörf og ólögmæt einangrun algengar.
Frá 9. júní hafa yfir milljón einstaklingar tekið þátt í mótmælum. Ríkisstjórnin hefur neitað að draga frumvarpið til baka og svarað mótmælunum með lögregluofbeldi.
Í friðsamlegum mótmælum þann 12. júní síðastliðinn beitti lögreglan táragasi og piparúða og í sumum tilfellum skaut hún baunapokum og gúmmíkúlum úr byssum. Ríkisstjórnin hefur gefið út að 81 einstaklingur hefur særst vegna mótmælanna. Samkvæmt rannsókn Amnesty International hefur lögreglan í Hong Kong brotið alþjóðalög um mannréttindi.
Skráðu þig í sms-aðgerðanetið og styddu við íbúa Hong Kong með því að svara AKALL í 1900.
Ríkisstjórn Hong Kong hefur frestað lagafrumvarpinu en ekki dregið það til baka og því gæti það verið lagt fram að nýju hvenær sem er.
Við krefjumst þess að ríkisstjórn Hong Kong dragi lagafrumvarpið umsvifalaust til baka, tryggi rétt til friðsamlegra mótmælafunda og leyfi sjálfstæða, hlutlausa og fljótvirka rannsókn á ofbeldi lögreglunnar í Hong Kong gegn mótmælendum.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu