Kína

Mannréttindalögfræðingur í haldi

Í augum hins sex ára gamla Guangwei er pabbi hans hetja. Í nærri því fjögur ár hefur hann ekki séð pabba sinn því hann er í haldi kínverskra yfir­valda fyrir að standa vörð um mann­rétt­indi.

Wang Quanzhang er kínverskur mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur sem hefur hætt lífi sínu til  að verja mann­rétt­indi. Þann 28. janúar 2019 hlaut hann fjög­urra og hálfs árs dóm fyrir að „grafa undan valdi ríkisins“. Lengi vel fengust engar upplýs­ingar um hvar Wang Quanzhang var haldið en nú hefur komið í ljós að hann var nýlega fluttur í Linyi-fang­elsið í Shandong-héraði.

Í júní síðast­liðnum fékk Wang Quanzhang loks að sjá fölskylduna sína í fyrsta skipti í fjögur ár en einungis í hálf­tíma. Eigin­kona hans, Li Wenzu, segir hann hafa breyst mikið, hann hafi lést umtals­vert og verið þreytu­legur á að líta. Hún lýsir manni sínum nú sem kvíðnum, áhyggju­fullum og órólegum en áður hafi hann verið rólegur og yfir­veg­aður.

Fjöl­skyldan hefur ekki enn fengið aðgang að öllum gögnum í máli Wang Quanzhang. Þá hefur eigin­konu hans verið veitt eftirför og hún áreitt af hálfu stjórn­valda fyrir að berjast fyrir lausn hans. Li Wenzu telur að ef ekki væri verið að fylgjast svona vel með málinu um allan heim myndu stjórn­völd koma enn verr fram við hana og fjöl­skyldu hennar.

Wang Quanzhang er samviskufangi og á meðan hann er í haldi á hann á hættu að vera pynd­aður og sæta illri meðferð.

Þrýstu á kínversk stjórn­völd að láta Wang Quanzhang lausan úr haldi tafar­laust!

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Afnema verður ritskoðunarlög sem kæfa andóf

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Ísrael

Tryggja þarf mannúðaraðstoð til Gaza

Skrifaðu undir og krefstu þess að forsætisráðherra Ísraels komi í veg fyrir að mannúðarneyðin aukist enn frekar og framfylgi úrskurði Alþjóðadómstólsins með því  að tryggja mannúðaraðstoð og læknisaðstoð fyrir alla íbúa Gaza í samræmi við alþjóðalög.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Stöðvið þvingaða brottflutninga í Kolwezi

Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.

Venesúela

Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa

Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.

Ísrael

Stöðva þarf tæknivædda aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum

Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.