FRÆÐSLA

Íslands­deild Amnesty Internati­onal býður upp á fjöl­breyttar mannréttindafræðslur fyrir skóla.

Fræðsla Amnesty International vinnur að því að ögra gildismati og staðalímyndum, vekja meðvitund um mikilvæga hluti sem oft eru ósýnilegir nemendum, þjálfa gagnrýna og jafnréttismiðaða hugsun, læra að setja sig í spor annarra, hlusta á ólík sjónarmið og æfa virðingarrík samskipti og samvinnu.

Eygló skoðar textann hér og bæti við einni málsgrein

Mannréttindaviðurkenning Amnesty International

Vill skólinn þinn verða Gulfánaskóli aMNESTY?

Við bjóðum fría fræðslu um allt land

Hefur þú áhuga að fá mannréttindafræðslu?

Hvað er mannréttindafræðsla?

Mannréttindafræðsla snýst ekki síður um tilfinningar nemandans en aukna þekkingu, því staðreyndirnar sem fjallað er um snerta raunverulegt líf fólks – yfirleitt erfiðustu hluta lífsins. Takmarkið er að nemandinn gangi burt frá fræðslunni með þrá í hjarta eftir bættari heimi og með einhver tól í höndum til að vinna að samfélagslegum breytingum. 

Mikilvægt starf Amnesty er að miðla áhrifamiklum reynslusögum brotaþola til almennings til að vekja meðvitund og baráttuanda. Frásagnir og miðlun persónulegrar reynslu telja samtökin lykilatriði í að byggja upp samkennd í verki og skilja mannlega þáttinn að baki hnattrænum vandamálum.

Í því skyni er einna helst stuðst við hina alþjóðlegu árlegu mannréttindaherferð samtakanna; Þitt nafn bjargar lífi. Bæta við texta um herferðina

Kennsluefni Amnesty hvetur því nemendur til að láta sér ekki nægja að hlusta, heldur kafa dýpra í sannar frásagnir.

Verkefnakista

Fjöl­breytt fræðsluefni og verkefni eru í boði fyrir kennara og áhugasama einstaklinga.

Myndbönd

Myndbönd tengd mannréttindum sem framleidd eru af Íslandsdeild Amnesty International.

Netnámskeið

Netnámskeið á íslensku tengd mannréttindum eru í boði fyrir alla áhugasama einstaklinga.