MannréttindaFRÆÐSLA
Fjölbreytt fræðsluerindi og vinnustofur fyrir skóla, fyrirtæki og hópa á öllum aldri
Fræðsla Amnesty International vinnur að því að ögra gildismati og staðalímyndum, vekja meðvitund um mikilvæga hluti sem oft eru ósýnilegir þátttakendum, þjálfa gagnrýna og jafnréttismiðaða hugsun, læra að setja sig í spor annarra, hlusta á ólík sjónarmið og æfa virðingarrík samskipti og samvinnu.
Í fræðslunni er til dæmis unnið með samkenndarþjálfun, hlutverkaleiki og skapandi skrif.
Við heimsækjum skóla bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni þeim að kostnaðarlausu.
Mannréttindaviðurkenning Amnesty International
Vill skólinn þinn verða Gulfánaskóli aMNESTY?
Gulfáninn er nýtt verkefni á vegum Íslandsdeildar Amnesty International sem miðað er að framhaldsskólum og unglingadeildum grunnskóla.
Við bjóðum fría fræðslu fyrir skóla um allt land
Hefur þú áhuga að fá mannréttindafræðslu?
Með fræðslu getum við barist gegn mismunun, stuðlað að jafnrétti og virkri þátttöku einstaklinga í lýðræðislegum ákvörðunum samfélagsins og þannig unnið að betri heimi.
Hvað er mannréttindafræðsla?
Fræðslu Amnesty International er ætlað að virkja, valdefla og hvetja þátttakendur til aðgerða í þágu mannréttinda. Markmið mannréttindafræðslu er að þátttakendur gangi burt með þrá í hjarta eftir betri heimi og einhver tól til að vinna að samfélagslegum breytingum.
Mannréttindafræðsla snýst ekki aðeins um aukna þekkingu heldur einnig um tilfinningar þátttakenda, þar sem viðfangsefnið er raunverulegt líf fólks. Verkefni og kennsluaðferðir sem virkja nemendur á tilfinningasviðinu telur Amnesty að hafi einna dýpst áhrif. Tilfinningafærni til samkenndar er forsenda þess að nemandi nái að meðtaka og nýta sér fræðslu um misrétti og mannréttindabrot.
Oftast lýkur fræðslunni með raunverulegu tækifæri fyrir þátttendur til að grípa til aðgerða og láta gott af sér leiða. Þátttakendum býðst að sýna samkenndina í verki og taka þátt í mannréttindastarfi með því að skrifa undir kröfubréf til stjórnvalda og/eða skrifa stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota.
Mannréttindafræðsla Amnesty International byggir á því að auka þekkingu, hæfni og breyta viðhorfum í þágu mannréttinda. Þetta er í samræmi við 26. grein Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna um að mennta einstaklinga og efla skilning, umburðarlyndi og vináttu milli hópa í þágu friðar.

Samkenndarþjálfun
Mannréttindafræðsla þarf að snúast um að þjálfa markvisst samkennd þátttakenda. Samkenndarspjöld eru nýtt kennslugagn Íslandsdeildar Amnesty International.
Samkenndarspjöld byggjast á sálfræðikenningum um samkennd og alþjóðlegu mannréttindaherferð Amnesty International: Þitt nafn bjargar lífi. Þessi árlega herferð kynnir persónulegar sögur þolenda mannréttindabrota.
Þrátt fyrir nístandi sögur af misrétti og ofbeldi veitir herferðin von, virkjar samtakamáttinn og gefur raunveruleg tækifæri til að bjarga mannslífum. Hún gefur nemendum innsýn í mannréttindastarf á afar einfaldan en þó djúpan og merkingarbæran hátt.
Samkenndarspjöldin kynna þátttakendum unga þolendur úr herferð síðustu ára. Annars vegar á spjöldum sem sýna nafn og andlit þolendanna, og þau mannréttindabrot sem fólkið hefur mátt sæta. Hins vegar á spjöldum án nafns og andlits en með persónulegum upplýsingum á borð við áhugamál viðkomandi. Þeim spjöldum er ætlað að fá þátttakendur til að líta fram hjá mismunarbreytum, svo sem þjóðerni og litarhafti, sem svo oft draga fólk í dilka með tilheyrandi valdamisvægi, fordómum og misrétti.
Með þessu er lögð áhersla á sameiginlega mennsku okkar allra og persónulega þætti. Tilfinningin fyrir mannréttindabrotum verður dýpri ef þátttandinn býr fyrst til persónuleg tengsl við þolandann og tengir við eigin reynsluheim.

Verkefnakista

Fjölbreytt fræðsluefni og verkefni eru í boði fyrir kennara og áhugasama einstaklinga.
Myndbönd

Myndbönd tengd mannréttindum sem framleidd eru af Íslandsdeild Amnesty International.
Netnámskeið

Netnámskeið á íslensku tengd mannréttindum eru í boði fyrir alla áhugasama einstaklinga.

