Gulfáninn
Nýtt samstarfsverkefni fyrir skóla
Gulfáninn er nýtt verkefni á vegum Íslandsdeildar Amnesty International sem miðað er að framhaldsskólum og unglingadeildum grunnskóla.
Fáninn er veittur skólum til viðurkenningar um mannréttindafræðslu og virka þátttöku skóla í mannúðarstarfi, en aðaláhersla verkefnisins er á valdeflingu nemenda og kennara á sviði mannréttinda og jafnréttis. Gulfána hlýtur skóli sem skuldbindur sig til samvinnu við deildina í heilt skólaár.
Verkefnið byggist á fjórum meginstólpum sem dreifast jafnt yfir skólaárið.
1) Kennarafræðsla
Fyrsti stólpi verkefnisins felur í sér fræðslu fyrir starfsfólk skólans. Allt starfsfólk fær almenna kynningu á verkefninu um haustið, en skólinn útnefnir einnig áhugasamt starfsfólk sem sækir ítarlegra mannréttindanámskeið þar sem verður meðal annars fjallað um eðli og áskoranir mannréttindafræðslu og mikilvæg skref í viðkvæmri umræðu með nemendum. Meðan á verkefninu stendur veita fræðslustjóri og ungliðastjóri Amnesty International gulfánateyminu leiðsögn og stuðning eins og þörf krefur.
2) Herferðin Þitt nafn bjargar lífi
Gulfánaskólar skuldbinda sig til að taka þátt í herferðinni í lok almanaksárs, enda afar einföld og fræðandi leið til að kynnast aðgerðastarfi og þjálfa eigin samkennd. Íslandsdeildin kynnir nemendum og starfsfólki valin mál þolenda mannréttindabrota og leiðir svo skólann áfram í að safna undirskriftum undir kröfubréf til stjórnvalda og í að skrifa stuðningskveðjur til brotaþolanna. Skólarnir sem safna flestum undirskriftum fyrir herferðina fá sérstaka viðurkenningu með viðhöfn og veitingum.
3) Nemendafræðsla
Gulfánaviðurkenning byggist ekki síst á mannréttindafræðslu til nemenda þátttökuskólanna. Útfærsla nemendafræðslunnar er ákveðin í sameiningu af gulfánateymi hvers skóla og Íslandsdeild Amnesty International, svo fræðslan skili sér á sem bestan hátt til nemendahópsins og mæti sérstöðu hvers skóla. Í fræðslunni leggjum við áherslu á verkefni sem markvisst þjálfa samkennd nemenda, og byggjum verkefnin á sálfræðikenningum um samkennd.
4) Mannréttindastarf nemenda
Áhersla Gulfánans er á samfélagslega ábyrgð og vitund nemenda, gerendahæfni þeirra og áhuga á réttlátari veröld. Þátttökuskóli gulfánaverkefnisins velur nemendur sem sitja vinnusmiðju og undirbúa þar mannréttindaverkefni innan skólans. Verkefnin geta t.d. verið tengd herferðum Amnesty eða viðeigandi þemaviku í skólanum, unnin innan ákveðinna námsfaga eða fallið undir félags- og hagsmunastarf nemendafélaga.

