hinsegin Réttindi
Íslandsdeild Amnesty International vann að herferð árið 2019 í samstarfi við Samtökin ’78, Intersex Ísland og Trans Ísland þar sem þrýst var á íslensk stjórnvöld að standa vörð um réttindi intersex og trans fólks.
Þrír einstaklingar deila sinni reynslu í þremur myndböndum fyrir herferðina.
Myndbönd um réttindi intersex fólks og trans fólks
Kitty Anderson – réttindi intersex fólks
„Fyrir komandi kynslóðir þá myndi ég vilja sjá að allir hefðu val um hvað væri gert við líkamann á þeim. Ég myndi líka vilja sjá að skömmin og leyndin myndi hverfa.“
– Kitty
Myndbandið var unnið í samvinnu við Reyni Lyngdal og framleiðslufyrirtækið Pegasus.
Alexander Björn Gunnarsson – réttindi trans fólks
„Fólki ætti að vera treyst fyrir því hvaða kyn stendur á skilríkjunum þeirra og hvaða nafn stendur þar.“
– Alexander
Myndbandið var unnið í samvinnu við Reyni Lyngdal og framleiðslufyrirtækið Pegasus.
Vally – réttindi trans fólks
„Það að ég skuli skilgreina mig fyrir utan kynjatvíhyggjuna, það á ekki að skipta svona miklu máli.“
– Vally
Myndbandið var unnið í samvinnu við Reyni Lyngdal og framleiðslufyrirtækið Pegasus.

