Fræðslur í boði
Með fræðslu getum við barist gegn mismunun, stuðlað að jafnrétti og virkri þátttöku einstaklinga í lýðræðislegum ákvörðunum samfélagsins og þannig unnið að betri heimi.
Mannréttindafræðsla Amnesty International byggir á því að auka þekkingu, hæfni og breyta viðhorfum í þágu mannréttinda.
Mannréttindaviðurkenning Amnesty International
Vill skólinn þinn verða Gulfánaskóli aMNESTY?
Við bjóðum fría fræðslu um allt land
Hefur þú áhuga að fá mannréttindafræðslu?
Fræðslur í boði
Íslandsdeild Amnesty International býður upp á fjölbreytt fræðsluerindi, vinnusmiðjur og málstofur fyrir bæði nemendur og kennara á grunn- og framhaldsskólastigi.
Við heimsækjum skóla bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni án endurgjalds.
Hér má sjá fræðsluerindi sem við bjóðum upp á en einnig getum við skipulagt önnur fræðsluerindi, smiðjur, málstofur eða lengri námskeið eftir því sem hentar.
Almenn fræðsla fyrir skóla
Fræðsla um Amnesty International og mannréttindi.
Fjallað er um upphaf og starfsemi samtakanna, mannréttindi og mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna ásamt því hvernig nemendur geta gripið til aðgerða og tekið þátt í mannréttindabaráttunni.
Lengd: 40-50 mínútur.
Fræðsluerindi fyrir kennara
Fræðsluerindi um mannréttindafræðslu fyrir kennara sem hafa áhuga á að styrkja hlut mannréttinda í kennslu.
Fræðslan hentar fyrir kennara í flestum fögum ef ekki öllum.
Markmiðið er að skapa vettvang til að deila reynslu og efla kennara í mannréttindakennslu.
Fjallað verður um tengsl mannréttindafræðslu við aðalnámskrá grunnskóla og áskoranir og tækifæri í mannréttindakennslu rædd.
Lengd: 60-90 mínútur.
Samkenndarþjálfun
„Samkenndarspjöldin“ byggja á sálfræðikenningum um samkennd og á hinni árlegu alþjóðlegu herferð Amnesty; Þitt nafn bjargar lífi sem kynnir mannréttindabrot í gegnum persónulegar sögur þolenda. Tilfinningin fyrir mannréttindabrotum verði dýpri ef nemandinn býr fyrst til persónuleg tengsl við þolandann.
Þetta er fljótlegast að gera með að skoða hvernig reynslusögur annarra tengjast eigin reynslu nemenda og leita að sameiginlegum grundvelli.
Spjöldunum er ætlað að þurrka út þær mismunarbreytum sem svo oft flokka mannkynið í dálka með tilheyrandi valdamisvægi, fordómum og misrétti – og leggja frekar áherslu á sameiginlega mennsku okkar allra.


