Fréttir
19. október 2018Í framhaldi af rannsókn Amnesty International í Danmörku og Þýskalandi og málþingsins; Mannréttindi intersex fólks: Ný nálgun til framtíðar sem fram fór hér á landi í febrúar árið 2018 í samstarfi við Samtökin ´78, Intersex Ísland og Mannréttindaskrifstofu Ísland, var afráðið að rannsakandinn Laura Carter ynni rannsókn á högum fólks með ódæmigerð kyneinkenni hér á landi.
Rannsóknin fór fram í júní og byggði á viðtölum við fjölda sérsfræðinga á heilbrigðissviði auk þess sem rætt var við fólk með ódæmigerð kyneinkenni og fjölskyldur þeirra. Vitað var áður en rannsókninni var ýtt úr vör hérlendis að aðgerðir væru framkvæmdar á ungabörnum enda þótt talið væri að þær væru fáar. Ónógar upplýsingar lágu þó fyrir um fjölda slíkra aðgerða hér á landi, embætti landlæknis haldi ekki slíka skrá og á sama tíma og skráningum er ábótavant er erfitt að setja þær undir einn hatt því eru einkennin eru ólík sem og þær meðferðir sem notaðar eru.
Litlar upplýsingar voru til staðar um stöðu intersex fólks á Íslandi þegar rannsóknin fór af stað en Amnesty International hefur nú mun betri mynd af því hvernig þessum málum er háttað á Íslandi og mun Íslandsdeild samtakanna kynna niðurstöðu rannsókninnar í skýrslu sem gefin verður út á næstu mánuðum.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu