Tilkynning
9. júní 2020Aðalfundur Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Einnig verður í boði fjarfundur til að gefa sem flestum félögum tækifæri til að taka þátt og fylgjast með starfi deildarinnar. Hlekkur á fjarfund
Vinsamlegast skráið ykkur fimmtán mínútur áður en fundur hefst til að hægt sé að staðfesta kosningarétt.
Íslandsdeild hvetur alla áhugasama um mannréttindi til að bjóða sig fram í stjórn samtakanna.
Dagskrá:
– Skýrsla stjórnar um liðið starfsár lögð til samþykktar
– Skýrsla stjórnar um fjárhag samtakanna og fjárhagsáætlun lagðar fram til samþykktar
– Ársreikningar lagðir fram til samþykktar
– Kosning stjórnar og félagskjörinna skoðunarmanna
– Ákvörðun um upphæð árgjalds
– Lagabreytingar. Smelltu hér til að sjá lagabreytingatillögur.
– Önnur mál
Spurningum varðandi kosningu og stjórnarsetu skal beint til Bjargar Maríu Oddsdóttur, formanns Íslandsdeildar Amnesty International á netfangið bjorg@amnesty.is.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu