Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn þriðjudaginn 24. mars 2026 kl. 18 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Veronika Velch framkvæmdastjóri Amnesty International í Úkraínu heldur erindi um stöðu mála í Úkraínu nú þegar rúmlega fjögur ár eru liðin frá innrás Rússlands í landið. Veronika er talsmaður mannréttinda með víðtæka alþjóðlega reynslu en hún starfaði í rúman áratug í Washington-borg við hagsmunagæslu og fyrir bættum mannréttindum.
Á dagskrá eru einnig hefðbundin aðalfundarstörf, m.a.:
- Skýrsla stjórnar um liðið starfsár kynnt
- Starfsáætlun fyrir komandi starfsár lögð fram
- Skýrsla stjórnar um fjárhag deildarinnar og fjárhagsáætlun kynnt
- Ársreikningar lagðir fram til samþykktar
- Kosning stjórnar og félagskjörinna skoðunarmanna
- Ákvörðun tekin um upphæð árgjalds
- Lagabreytingar
- Önnur mál
Íslandsdeild hvetur alla áhugasama um mannréttindi til að bjóða sig fram í stjórn samtakanna.
Spurningum varðandi kosningu og stjórnarsetu skal beint til Evu Einarsdóttur, formanns Íslandsdeildar Amnesty International á netfangið eva@amnesty.is.


