Smánarblettur á arfleifð Barack Obama í forsetaembætti ef Edward Snowden hlýtur ekki sakaruppgjöf
Barack Obama ætti að halda sig réttu megin sögunnar með því að veita uppljóstraranum Edward Snowden sakaruppgjöf en Snowden á yfir höfði sér áratuga langan fangelsisdóm fyrir að tala máli mannréttinda, að sögn Amnesty International, American Civil Liberties Union (ACLU), Human Rights Watch og fjölda annarra samtaka, sem ýttu alþjóðlegri undirskriftasöfnun úr vör í dag, til stuðnings Edward Snowden.

