1.507 niðurstöður

  • Amnesty International gefur út yfirlýsingu um kyn – og frjósemisréttindi

    Ríkisstjórnir um heim allan og aðrir ráðandi aðilar keppast við að setja takmarkanir á einkalíf okkar sem við ættum að hafa fullan sjálfsákvörðunarrétt yfir, m.a. um kynhneigð okkar, kynlíf, náin sambönd og getnaðarvarnir.   Amnesty International hefur gefið út yfirlýsingu í sjö liðum til að standa vörð um kyn- og frjósemisréttindi okkar. 

  • Ágrip af góðum fréttum frá árinu 2014

    Eftir rúmlega tveggja áratuga baráttu tók alþjóðlegur vopnaviðskiptasamningur loks gildi eftir að 130 lönd höfðu skrifað undir og 62 lönd fullgilt hann. Ísland varð fyrst ríkja heims til að fullgilda samninginn.

  • Filippseyjar: Bréfin veittu Jerryme Corre og eiginkonu hans styrk.

    Þann 16. febrúar síðastliðinn heimsótti starfsfólk Amnesty International á Filippseyjum Jerryme Corre í fangelsið þar sem hann hefur setið á bak við lás og slá í rúm þrjú ár og færði honum stuðningskveðjur frá fólki víðs vegar um heiminn. 

  • 2014: Hræðilegt ár fyrir mannréttindi

    Ríkisstjórnir tala fjálglega um nauðsyn þess að vernda almenna borgara. En stjórnmálamönnum heimsins hefur mistekist hrapallega að vernda þá sem mest þurfa á vernd að halda. 

  • Réttlæti í Mexíkó

    Ég hef séð Claudiu Medina gráta margsinnis. En í dag er í fyrsta sinn sem ég hef séð hana gráta af gleði og létti. Dómari hefur dregið síðustu ákæru gegn henni til baka, á þeim grundvelli að eina sönnunargagnið gegn henni, skýrsla sem var gerð af hernum, væri lygi.

  • Íslandsdeild Amnesty International afhendir innanríkisráðherra 3557 undirskriftir

    Í dag afhenti Íslandsdeild Amnesty International Ólöfu Nordal innanríkisráðherra áskorun þar sem 3557 einstaklingar kalla eftir því að innanríkisráðherra og ríkisstjórn Íslands fullgildi nú þegar valfrjálsu bókunina og sýni þar með í verki að íslensk stjórnvöld láti ekki nægja fyrirheit um að borgararnir verði ekki látnir sæta pyndingum eða annarri vanvirðandi meðferð, heldur verði óháðum eftirlitsaðila falið að fylgjast með því að þau fyrirheit séu efnd.

  • Málþing: Hvernig má staðfesta að pyndingum sé ekki beitt?

    Íslandsdeild Amnesty International og Mannréttindaskrifstofa Íslands standa fyrir málþingi um mikilvægi fullgildingar valfrjálsrar bókunar við samning SÞ gegn pyndingum. Málþingið fer fram í Öskju 132, við Háskóla Íslands þann 6. mars næstkomandi frá kl. 12 til 14. 

  • Úkraína: Íbúar Debaltseve á barmi örvæntingar

    Íbúar í bænum Debaltseve í Úkraínu eru á barmi örvæntingar, þúsundir leita í örvinglun að skjóli frá sprengjuárásum og skortur er á rennandi vatni, rafmagni og nauðsynlegum sjúkravörum, að sögn Amnesty International.