Bandaríkin verða að rannsaka ásakanir um misþyrmingar á föngum sem birtast í Wikileaks skjölunum
Amnesty International hvetur bandarísk stjórnvöld til að rannsaka hvað starfsmenn bandarískra yfirvalda vissu um pyndingar og aðra illa meðferð á fólki í varðhaldsvist íraskra öryggisyfirvalda, eftir að ný gögn birtust í skjölum sem Wikileaks samtökin birtu þann 22. október.

