styrktu STARFIð

Allt starf Amnesty International er fjármagnað og drifið áfram af einstaklingum eins og þér. Með þinni hjálp getum við haldið starfi okkar áfram til að vernda líf og standa vörð um mannréttindi.

Leggðu starfinu lið

Amnesty Internati­onal er stærsta mannréttindahreyfing í heimi. Kjarni starfsins felst í að berjast gegn mannréttindabrotum um heim allan.

Alþjóðastarf Amnesty International byggist nær eingöngu á styrktarframlagi einstaklinga. Það gerir okkur kleift að vera óháð pólitískum, trúarlegum og efnahagslegum hagsmunum.

Vissir þú að þú færð skattaafslátt af framlagi þínu til Amnesty?

Einstaklingar og fyrirtæki hljóta afslátt af framlögum sínum til almannaheillafélaga.  

Amnesty International sér alfarið um senda upplýsingarnar til Skattsins og þú þarft ekki að aðhafast neitt. Styrktarframlögin þín til okkar verða síðan forskráð á skattaskýrslunni þinni. 

Fyrir einstaklinga þarf styrkfjárhæðin að vera að lágmarki 10 þúsund krónur á ári og hámarks skattafsláttur fæst fyrir 350 þúsund króna framlag á ári. Dæmi:

  • Vonarljós sem greiðir 3.500 krónur á mánuði, fær sá einstaklingur sjálfkrafa 1.330 kr. afslátt og greiðir því eingöngu 2.170 krónur úr eigin vasa. Þetta nemur 15.960 kr afslætti á ári.
  • Einstaklingur sem greiðir 10 þúsund króna stakan styrk fær 3.800 kr skattafslátt og því eingöngu 6.200 kr. úr eigin vasa.

*Tekjuskatthlutfall er breytilegt en miðað er við 38% meðalskattaafslátt.

Fyrirtæki sem styðja almannaheillafélög með einum eða öðrum hætti fá afslætti af styrkjum sem nemur allt að 1,5% af tekjuskattsstofni. Ekki eru neinar reglur um hámark eða lágmark. Sem dæmi fyrirtæki styrkir um eina milljón þá lækkar það tekjuskatt sinn um 200.000 krónur ef miðað er við 20% skatt.

Þú getur styrkt mann­rétt­ind­astarfið með vörukaupum

Vefverslun

Sokkar

Sokkarnir eru teygjanlegir og komu í tveimur stærðum.

Tautaska

Þessi er æðisleg í sund­ferðina, búðina eða fyrir hvað sem er.

Litabók

Fyrir þau sem finnst gaman að lita og vilja í leiðinni fræðast um frægt baráttu­fólk fyrir mann­rétt­indum.

Hægt er að arfleiða hluta eigna sinna til Íslands­deildar Amnesty Internati­onal

Erfðagjöf

Erfða­gjafir til Íslands­deildar Amnesty Internati­onal eru undan­þegnar erfða­fjárskatti og eru tilteknar í erfða­skrám.