MannréttindaFRÆÐSLA
Íslandsdeild Amnesty International býður upp á fjölbreyttar mannréttindafræðslur fyrir skóla, fyrirtæki og hópa.
Fræðsla Amnesty International vinnur að því að ögra gildismati og staðalímyndum, vekja meðvitund um mikilvæga hluti sem oft eru ósýnilegir nemendum, þjálfa gagnrýna og jafnréttismiðaða hugsun, læra að setja sig í spor annarra, hlusta á ólík sjónarmið og æfa virðingarrík samskipti og samvinnu.
Mannréttindaviðurkenning Amnesty International
Vill skólinn þinn verða Gulfánaskóli aMNESTY?
Við bjóðum fría fræðslu um allt land
Hefur þú áhuga að fá mannréttindafræðslu?
Hvað er mannréttindafræðsla?
Fræðslu Amnesty International er ætlað að virkja, valdefla og hvetja áheyrendur til aðgerða í þágu mannréttinda. Markmið mannréttindafræðslu í skólum landsins er að nemandinn gangi burt með þrá í hjarta eftir betri heimi og einhver tól til að vinna að samfélagslegum breytingum. Oftast lýkur fræðslunni með raunverulegu tækifæri fyrir nemendur til að grípa til aðgerða og láta gott af sér leiða.
Mannréttindafræðsla snýst ekki aðeins um aukna þekkingu heldur einnig um tilfinningar nemandans, þar sem viðfangsefnið er raunverulegt líf fólks. Verkefni og kennsluaðferðir sem virkja nemendur á tilfinningasviðinu telur Amnesty að hafi einna dýpst áhrif. Tilfinningafærni til samkenndar er forsenda þess að nemandi nái að meðtaka og nýta sér fræðslu um misrétti og mannréttindabrot.
Í fræðslunni er til dæmis unnið með samkenndarþjálfun, hlutverkaleiki, hópavinnu og skapandi skrif.Í lokin býðst nemendum að sýna samkenndina í verki og taka þátt í mannréttindastarfi með því að skrifa undir kröfubréf til stjórnvalda og/eða skrifa stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota.

Verkefnakista

Fjölbreytt fræðsluefni og verkefni eru í boði fyrir kennara og áhugasama einstaklinga.
Myndbönd

Myndbönd tengd mannréttindum sem framleidd eru af Íslandsdeild Amnesty International.
Netnámskeið

Netnámskeið á íslensku tengd mannréttindum eru í boði fyrir alla áhugasama einstaklinga.

