Mótmælavakt
Viltu vera með í fyrstu mótmælavakt Íslands?
Rúmlega tuttugu deildir Amnesty International eru annaðhvort með mótmælavakt eða vinna að því innleiða hana inn í starf sitt. Íslandsdeild Amnesty International er á meðal þeirra sem vinnur að innleiðingu hennar.
Mótmælavakt er að mestum hluta unnin af sjálfboðaliðum og því heillandi tækifæri fyrir áhugasama að taka þátt í þessu spennandi verkefni og vera hluti af mannréttindabaráttunni hér á Íslandi.
Hlutverk mótmælavaktar er að vera hlutlaus aðili til að skrásetja það sem fer fram á mótmælum.
Þátttakendur mæta á mótmæli í sýnileikavestum merktum mótmælavakt Amnesty International og vinna saman í pörum við að skrásetja með skriflegum hætti hvernig mótmælin fara fram og taka myndir. Öllum gögnum er síðan skilað til úrvinnslu á skrifstofu Íslandsdeildarinnar.
Til að taka þátt í mótmælavaktinni þarf fyrst að mæta á undirbúningsnámskeið þar sem farið er yfir leiðarvísi mótmælavaktarinnar, helstu öryggisatriði og verklagsreglur.
Skráðu þig á póstlista til að fá upplýsingar um næsta undirbúningsnámskeið.
Skráning á póstlista um mótmælavaktina
Tjáningarfrelsið
Rétturinn til að mótmæla
Hvað er mótmælavakt?
Mótmælavöktun hefur verið framkvæmd með ýmsum leiðum frá sjöunda áratug síðustu aldar. Hún felst í því að skrásetja með einföldum hætti atburði og framgang yfirvalda gagnvart óbreyttum borgurum í þeim tilgangi að vernda tjáningar- og fundafrelsið. Þetta er einföld skrásetning á atburðum.
Mótmælavakt er mikilvægur óháður sjónarvottur til viðbótar við vitnisburð lögreglu og mótmælenda. Amnesty International er með skýrar vinnureglur þegar kemur að mótmælavaktinni til að tryggja eins og best verður á kosið að ferlið sé öruggt og skilvirkt fyrir alla þátttakendur.
Skýrt er að vöktun mótmæla er lögleg samkvæmt alþjóðalögum.
Í bókun 37 frá árinu 2020, sem fjallar um 21. grein í alþjóðasamningi um borgaraleg, efnahagsleg og stjórnmálaleg réttindi, kemur fram að þeir sem vakta mótmæli eigi að njóta verndar og athæfi þeirra teljist ekki refsivert jafnvel þótt fundur verði ófriðsamlegur.
Gagnsemi mótmælavaktar
Upplýsingar frá öðrum deildum Amnesty International sýna fram á margþætta gagnsemi mótmælavaktarinnar. Sýnileiki hennar á mótmælum dregur úr ófriði milli lögreglu og mótmælenda. Í Slóveníu hafði ofbeldi lögreglu gagnvart mótmælendum viðgengist lengi en með tilkomu mótmælavaktar þar í landi voru bæði skipuleggjendur og lögregluyfirvöld farin að bjóða mótmælavakt að mæta á staðinn vegna jákvæðra áhrifa sem hún hafði.
Mótmælavakt vekur mótmælendur til vitundar um réttinn til að mótmæla og styður við hópa og félagasamtök sem vilja nýta rétt sinn til tjáningar- og fundafrelsis. Í Finnlandi má segja að mótmælavaktin hafi slegið í gegn þar sem hún er vinsælasta sjálfboðastarfið sem Amnesty International býður upp á. Er henni lýst sem uppbyggilegu aðgerðastarfi fyrir þátttakendur.







