SMS

3. júní 2020

Banda­ríkin: Krefstu rétt­lætis fyrir George Floyd

„Ég næ ekki andanum“ kvað George Floyd á meðan lögreglu­maður kraup yfir honum, þrýsti hné sínu að hálsi hans og neitaði að færa sig af honum í sjö mínútur. „Ég er að deyja!“ sagði George með hend­urnar bundnar fyrir aftan bak.

Þegar lögreglu­mað­urinn loksins fjar­lægði hnéð af hálsi George var hann meðvit­und­ar­laus. George var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurð­aður látinn. George Floyd var óvopn­aður, svartur karl­maður.

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.

Stuttu áður hafði afgreiðslu­maður í matvöru­verslun kallað til lögreglu vegna gruns um að George hafi reynt að greiða vörur með föls­uðum peninga­seðliGeorge fékk að gjalda fyrir það með lífi sínu. Ef lögreglan hefði ekki beitt ólög­mætri vald­beit­ingu væri George enn á lífi. 

Dauði George Floyd er birt­ing­ar­mynd gífur­legs ofbeldis og kynþáttam­is­réttis gegn svörtu fólki í Banda­ríkj­unum. Fjöldi sambæri­legra mála hafa átt sér stað undan­farið og má þar nefna morð á Ahmaud Arbery sem var úti að skokka og morðið á Breonnu Taylor sem var sofandi heima hjá sér þegar lögreglan hóf skot­hríð. Lögreglan fremur fjöldann allan af mann­rétt­inda­brotum gegn minni­hluta­hópum fólks, sérstak­lega gegn svörtum Banda­ríkja­mönnum. Árið 2019 var lögreglan viðriðin yfir eitt þúsund dauðs­föll í Banda­ríkj­unum. 

 

Lögreglu­mönn­unum sem tengjast dauðs­falli George Floyd hefur verið vikið úr starfi en það er ekki nóg til að  fram rétt­læti. Fjöl­skylda George og nærsamfélag kalla eftir því að þeir sem berábyrgð á dauða hans sæti refs­ingu og að tryggt verði að þetta gerist ekki aftur. Almenn­ingur í Banda­ríkj­unum stendur fyrir víðtækum mótmælum um allt landið og krefst aðgerða en þeim er mætt með kúgun og ofríki lögreglu. 

SMS-félagar krefjast þess að yfir­völd í Banda­ríkj­unum sæki til saka þá sem bera ábyrgð á dauða George Floyd og annarra í sambæri­legum málum! 

 #JusticeforGeorgeFloyd! 

Lestu einnig