Tilkynning
28. maí 2025Götukynnar Íslandsdeildar Amnesty International hafa nú hafið störf fyrir sumarið. Þau munu kynna starf samtakanna og bjóða áhugasömu fólki að gerast Vonarljós. Vonarljós eru mánaðarlegir styrktaraðilar samtakanna og tákn um von fyrir þolendur mannréttindabrota.
Kjarni starfs Amnesty International felst í að berjast gegn mannréttindabrotum um heim allan. Allt starf Íslandsdeildarinnar byggist á frjálsum framlögum einstaklinga til að við getum verið óháð hagsmunum stjórnvalda og stórfyrirtækja.
Götukynningar Íslandsdeildarinnar hafa gengið vel í gegnum árin frá því að þær hófust fyrst árið 2004. Götukynningar gefa tækifæri til að kynna starf okkar og ná til fjölbreytts hóps fólks sem brennur fyrir mannréttindum og hefur áhuga á að leggja baráttunni lið. Þannig hefur deildin náð að stækka og dafna.
Götukynnar okkar verða staðsettir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Má þar nefna við verslanir, í verslunarmiðstöðvum, í miðbænum og við sundlaugar. Þeir verða vel merktir Amnesty International og eru tilbúnir að fræða fólk um mannréttindastarfið okkar. Við vonum svo sannarlega að fólk taki vel á móti þeim.
Vakni einhverjar spurningar vegna götustarfsins þá má endilega hafa samband við okkur á netfangið amnesty@amnesty.is.
Á myndinni sjást götukynnar Íslandsdeildar Amnesty International: Elías Kári Huldarsson og Unnur Friðriksdóttir.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu