SMS
11. júlí 2019Átján ára unglingur, Daniel Zeinolabedini, sem er í haldi í Mahabad-fangelsi í Vestur-Azerbaijan héraði í Íran, á hættu á að vera tekinn af lífi. Hann var dæmdur til dauða fyrir manndráp í júní 2018 eftir ósanngjörn réttarhöld þegar hann var aðeins 17 ára. Aftaka væri alvarlegt brot á alþjóðalögum.
Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér!
Daniel var handtekinn 26. september 2017 eftir að hafa verið yfirheyrður fyrir mannrán og morð á hinum 19 ára gamla Sadegh Barmaki sem var stunginn og brenndur lifandi. Daniel var ákærður ásamt fjórum öðrum mönnum og þann 3. júní var hann dæmdur til dauða fyrir aðild sína að morðinu. Tveir aðrir þeirra ákærðu voru einnig dæmdir til dauða en tveir voru dæmdir til fangelsisvistar.
Amnesty fordæmir dauðarefsingar og er alfarið á móti þeim í öllum tilfellum undir öllum kringumstæðum, algjörlega óháð því hver á hana yfir höfði sér, hvort sem sá aðili er sekur eða saklaus eða hvernig hún eigi að vera framkvæmd.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu