Líbanon: Vernda þarf óbreytta borgara vegna árása Ísraels
Á innan við tíu mínútum réðst Ísrael á hundrað staði í Líbanon þar sem hundruð létu lífið og særðust. Árásirnar áttu sér stað 8. apríl sem var mannskæðasti dagurinn í síðustu lotu árása sem hófst 2. mars. Gerðar voru linnulausar loftárásir í suðurhluta Líbanon, í Beqaa-dalnum og á fjölmennum svæðum í Beirút, án nokkurrar viðvörunar. Sjúkrahús sendu frá sér neyðarkall til að óska eftir blóðgjöfum vegna gífurlegs fjölda særðra. Aðeins örfáum klukkustundum eftir að heimurinn fagnaði af varfærni fréttum af vopnahléi Bandaríkjanna og Ísrael við Íran varð staða óbreyttra borgara í Líbanon enn skelfilegri.

