Tilkynning
12. febrúar 2021Háteigsskóli og Alþjóðaskólinn á Íslandi eru Mannréttindagrunnskólar ársins 2020 og hlutu nú í febrúar viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í grunnskólakeppni Íslandsdeildar Amnesty International og titilinn Mannréttindagrunnskóli ársins. Þetta er þriðja árið í röð sem skólarnir sigra keppnina hvor í sínum flokkinum. Þá hlutu Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn á Húsavík viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í framhaldsskólakeppni samtakanna.
Þitt nafn bjargar lífi 2020, stærsta árlega herferð Amnesty International, gekk vonum framar en samtals söfnuðust 70.405 undirskriftir til stjórnvalda. Bregða þurfti út af vananum við skipulagningu herferðinnar í ár vegna kórónuveirufaraldursins og því voru engar skólaheimsóknir á dagskránni né viðburðir haldnir líkt og venja er. Í grunnskólum landsins söfnuðust í heildina 2502 undirskriftir og 5407 undirskriftir í framhaldsskólunum. Alls söfnuðust 322 stuðningskveðjur en næstum helmingurinn kom frá nemendum Alþjóðaskólans á Íslandi sem skrifuðu hvorki meira né minna en 145 stuðningskveðjur.
Herferðin Þitt nafn bjargar lífi
Þitt nafn bjargar lífi er stærsti árlegi viðburður Amnesty International en þá skrifar fjöldi fólks nafn sitt á bréf og kort til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og krefst réttlætis í þágu þolenda brotanna. Samtímis skrifa hundruð þúsunda einstaklinga víða um heim slík bréf en árið 2019 söfnuðust í heildina rúmlega 6,6 milljónir undirskrifta um heim allan.
Bréfin bera árangur. Þau bjarga lífi, því þó stjórnvöld eigi auðvelt með að hunsa eitt bréf er erfitt að líta undan þegar milljónir slíkra bréfa berast alls staðar að úr heiminum. Á hverju ári verðum við líka vitni að raunverulegum breytingum í lífi þeirra sem beittir eru grófum órétti og við berjumst fyrir. Við höfum átt þátt í því að fjöldi samviskufanga hafa verið leystir úr haldi, pyndarar hafa verið látnir svara til saka, fangar á dauðadeild verið náðaðir og ómannúðlegri löggjöf breytt.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu