Árangur Þitt nafn bjargar lífi 2025
Hin árlega herferð Þitt nafn bjargar lífi gekk fremur vel árið 2025 en samtals söfnuðust 35.731 undirskriftir á Íslandi fyrir öll málin átta sem voru í forgrunni herferðarinnar. Þetta árið var einnig aukin áhersla á að skrifa stuðningskveðjur til að sýna þolendum mannréttindabrota og aðstandendum þeirra stuðning, sem er ekki síður mikilvægt til að veita þeim von og styrk. Samtals voru 335 stuðningskveðjur skrifaðar hér á landi, bæði handskrifaðar og á netinu, sem er 44% aukning á milli ára.

