Tilkynning
29. mars 2021Amnesty International hefur ráðið nýjan aðalframkvæmdastjóra, Agnèsi Callamard sérfræðing í mannréttindum, sem hefur formlega störf í dag, þann 29. mars 2021. Agnès Callamard gengur til liðs við stærstu óháðu mannréttindasamtök heims í kjölfar starfa sinna sem sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um aftökur án dóms og laga. Í því hlutverki leiddi hún mikilvægar rannsóknir, þeirra á meðal rannsókn á morðinu á sádi-arabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi.
Sem aðalframkvæmdastjóri verður Agnès Callamard æðsti framkvæmdastjóri alþjóðaskrifstofu samtakanna og helsti talsmaður alþjóðahreyfingar Amnesty International sem er með tíu milljónir stuðningsaðila um heim allan og deildir í 70 löndum.
Glæsilegur ferill
Agnès Callamard er franskur ríkisborgari sem á glæsilegan feril að baki í störfum á sviði mannréttinda við háskóla, hjá frjálsum félagasamtökum og Sameinuðu þjóðunum. Hún var óháður mannréttindasérfræðingur hjá Sameinuðu þjóðunum á sama tíma og hún stýrði verkefni hjá Columbia-háskóla um tjáningarfrelsi (Global Freedom of Expression). Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá ARTICLE 19, samtökum um tjáningarfrelsi og var jafnframt stofnandi og framkvæmdastjóri hjá HAP International (Humanitarian Accountability Partnership) sem vinnur að því að auka ábyrgðarskyldu í mannúðarstörfum vegna neyðarástands.
Hún starfaði fyrir Amnesty International árin 1995-2001, meðal annars sem hægri hönd þáverandi aðalframkvæmdastjóra Pierre Sané. Hún hefur leitt rannsóknir á mannréttindum í yfir 30 löndum og gefið út efni um mannréttindi, kvenréttindi, tjáningarfrelsi, flóttafólk og aðferðafræði fyrir mannréttindarannsóknir.
„Á tímum þar sem mannréttindum er ógnað um heim allan á fordæmislausan hátt leiðir Agnès Callamard hreyfingu Amnesty International áfram með hvatningu og sameiningu til að takast á við þessar áskoranir. Hún er gríðarlega hæf til að leiða hreyfinguna. Við erum himinlifandi yfir ákvörðun hennar að samþykkja að takast á við þessar áskoranir og leiða okkur af krafti yfir í næsta áfanga.“
Sarah Beamish, formaður alþjóðastjórnar í tilkynningu um ráðninguna.
Aðalframkvæmdastjóri var ráðinn af alþjóðastjórn Amnesty International til fjögurra ára til að byrja með eftir víðtæka leit um heim allan og tekur Agnès Callamard við af Julie Verhaar sem starfaði tímabundið sem aðalframkvæmdstjóri til bráðabirgða.
„Ítarlegar rannsóknir og öflugar herferðir Amnesty International eru enn mikilvægari en áður þar sem stjórnvöld og fyrirtæki reyna að þagga niður í þeim sem fjalla um brot þeirra, hagræða sannleikanum, og grafa undan eða hafna mannréttindum. Það er mér mikill heiður að taka við starfi sem aðalframkvæmdastjóri og starfa með öllu stuðningsfólki Amnesty International um heim allan til að við getum í sameiningu varið og krafist verndar mannréttinda fyrir alla.“
Agnès Callamard, nýráðinn aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.
Að lokum þakkar Amnesty International Julie Verhaar kærlega fyrir störf sín sem tímabundinn aðalframkvæmdastjóri og óskar henni velfarnaðar í sínum störfum. Íslandsdeild Amnesty International fagnar nýjum aðalframkvæmdastjóra og býður Agnès Callamard velkomna til starfa.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu