Tilkynning
24. maí 2024Á síðastliðnu ári var Norræna ungliðaráð Amnesty International stofnað og í því sitja tveir ungliðar frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Markmið ungliðaráðsins er að gefa ungu fólki vettvang til að kynnast hvert öðru, efla leiðtogahæfileika sína og hafa áhrif á mannréttindastarf Amnesty International á Norðurlöndunum.
Þann 22.-25. ágúst næstkomandi býður Norræna ungliðaráðið fimm ungliðum frá Íslandi til fundar og vinnusmiðju í Svíþjóð. Tvö pláss hafa þegar verið fyllt af fulltrúum Íslandsdeildar í ráðinu, og eru því þrjú pláss laus til umsóknar. Íslandsdeild Amnesty International greiðir fyrir flug, samgöngur, gistingu og mat á meðan ferðinni stendur.
Norræni fundurinn er ætlaður 18-24 ára gömlum ungliðum sem vilja hafa meiri áhrif innan Amnesty International. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast öðrum ungliðum frá Norðurlöndunum sem og deila þekkingu og reynslu í fallegu umhverfi Stokkhólms í Svíþjóð!
Umsóknarfrestur er til 6. júní. Hægt er að sækja um hér.
Yfirskrift fundarins þetta árið er Mannréttindaneyð á Gaza og í Palestínu.
Þátttakendum gefst tækifæri til að:
Til að fræðast meira um Norræna ungliðaráðið má fylgjast með Instagram reikningi ráðsins hér. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á meðlimi ráðsins:
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu