SMS
4. júní 2025Gleðigangan í Búdapest í Ungverjalandi er í hættu. Ný löggjöf í Ungverjalandi tók gildi 15. apríl 2025 en lögunum er hægt að beita til að banna gleðigönguna þar í landi.
Nýju lögin kveða á um að ekki megi halda samkomu sem brýtur gegn lögum frá árinu 2021. Lögin frá 2021 banna að „kynna og auglýsa“ samkynhneigð og fjölbreytta kynvitund fyrir þau sem eru undir 18 ára. Nýju lögin heimila einnig notkun á tækni til andlitsgreiningar á þátttakendum á bönnuðum samkomum og sekta þá sem taka þátt.
Ungverska þingið samþykkti breytingar á stjórnarskránni 14. apríl til að hægt væri að innleiða þessi nýju lög sem skerða réttindi hinsegin fólks í nafni þess að vernda börn.
Skipuleggjendur bannaðra samkoma geta átt yfir höfði sér allt að eins árs fangelsi samkvæmt hegningarlögum.
Þessi lög neita fólki um að nýta rétt sinn til friðsamlegra mótmæla og koma í veg fyrir að hinsegin fólk krefjist jafnréttis, sýnileika og viðurkenningar andspænis aukinni mismunun.
SMS-félagar krefjast þess að að ungverska lögreglan leyfi gleðigöngunni í Búdapest að fara fram án kúgunar, ótta eða ofbeldis.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu