Fréttir

27. maí 2025

Ungverja­land: Lög sem banna gleði­göngu

Ný löggjöf í Ungverjalandi tók gildi 15. apríl 2025 en lögunum er hægt að beita til að banna gleði­gönguna þar í landi. Amnesty Internati­onal hóf í kjöl­farið alþjóð­lega herferð til að kalla eftir því að lögreglu­stjóri Búdapest sjái til þess að fólk geti tekið þátt í gleði­göng­unni og tryggi öryggi þátt­tak­enda. Fólk um allan heim er hvatt til að sýna hinsegin fólki í Ungverjalandi stuðning.

Í ár eru 30 ár liðin frá því að fyrsta gleði­gangan í Búdapest var gengin. Fram­kvæmda­stjóri Amnesty Internati­onal í Ungverjalandi segir að gleði­gangan fari fram í ár til að krefjast jafn­réttis og virð­ingar fyrir hinsegin fólki. Þar mun fólk sem er andsnúið mismunun og skerð­ingu á funda- og tján­ing­ar­frelsinu ganga saman. Þessi löggjöf er enn ein aðgerðin sem beinist gegn hinsegin fólki og miðar að því að taka af því rétt­indi.

Frum­varpinu að lögunum var flýtt í gegnum þingið í mars og var að lokum samþykkt án þess að það hefði verið sett í umsagn­ar­ferli. Nýju lögin kveða á um að ekki megi halda samkomu sem brýtur gegn lögum frá árinu 2021. Lögin frá 2021 banna að „kynna og auglýsa“ samkyn­hneigð og fjöl­breytta kynvitund fyrir þau sem eru undir 18 ára. Nýju lögin heimila einnig notkun á tækni til andlits­grein­ingar á þátt­tak­endum á bönn­uðum samkomum og sekta þá sem taka þátt.

Ungverska þingið samþykkti breyt­ingar á stjórn­ar­skránni 14. apríl til að hægt væri að innleiða þessi nýju lög sem skerða rétt­indi hinsegin fólks í nafni þess að vernda börn.

Skipu­leggj­endur bann­aðra samkoma geta átt yfir höfði sér allt að eins árs fang­elsi samkvæmt hegn­ing­ar­lögum. Lögin víkka einnig út skil­yrði fyrir lögreglu til að sundra bönn­uðum samkomum. Ólög­mætar aðferðir til að sundra gleði­göngu geta valdið óróa og spennu og jafnvel ýtt undir ofbeldi.

Það verður að leyfa fólki að taka þátt í göng­unni með öruggum hætti. Amnesty Internati­onal kallar á ungversku lögregluna að virða, vernda og greiða leið fyrir fólk til að nýta réttinn sinn til að mótmæla líkt og þeim ber skylda til samkvæmt alþjóða­lögum.

Mótmæli eru mann­rétt­indi og við verðum að styðja þá hugrökku mótmæl­endur sem tengjast gleði­göng­unni í Búdapest.

Smelltu hér til að skrifa undir ákall til að krefjast þess að ungverska lögreglan leyfi gleði­göng­unni í Búdapest að fara fram án kúgunar, ótta eða ofbeldis.

 

 

Lestu einnig