SMS

23. júní 2020

Ungverja­land: Verndum rétt­indi trans og intersex

Þann 28. maí stað­festi forseti Ungverja­lands ný lög sem samþykkt voru á þingi 19. maí og banna breyt­ingu á kynskrán­ingu. Sérstakur eftir­lits­maður um grund­vall­ar­mann­rétt­indi í Ungverjalandi (e. Hungary’s Comm­issi­oner for Funda­mental Rights) getur komið í veg fyrir að lögin verði að veru­leika með því að kalla eftir endur­skoðun á þeim. Ef eftir­lits­mað­urinn bregst ekki við er alvar­lega vegið að rétt­indum trans og intersex fólks og hætta á að lögin ýti undir frekari árásir og haturs­glæpi gegn þessum hópum.

Samkvæmt alþjóð­legum mann­rétt­inda­lögum eiga einstak­lingar rétt á að skrá kyn sitt á auðveldan og aðgengi­legan hátt eftir þeirra eigin skil­grein­ingu. Tryggja verður að einstak­lingar hafi aðgang að skjölum sem inni­halda nafn og kyn þeirra án þess að utan­að­kom­andi aðilar ákvarði skráningu. 

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.

ju ákvæðin í lögunum stangast á við alþjóðleg mann­rétt­indalög og almenn rétt­indi í Ungverjalandi. 

Í Ungverjalandi verður trans og intersex fólk oft fyrir mismunun, sérstak­lega þegar kemur að atvinnu, menntun og húsnæði. Nýju lögin skerða enn frekar rétt­indi þessara hópa og munu leiða til enn frekari mismun­unar. 

Einstak­lingar eiga rétt á að skrá kyn sitt samkvæmt sinni eigin skil­grein­ingu. Ungverja­land verður að tryggja að breyting á kynskrán­ingu verði áfram aðgengileg.  

SMS-félagar krefjast þess að lögin verði endur­skoðuð! 

Lestu einnig