Aðgerðasinninn Tep Vanny laus úr haldi í kjöldar konunglegrar náðunar
Þann 15. ágúst 2016 var Tep Vanny handtekin og þann 23. febrúar 2017 var hún dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi. Hún var sakfelld vegna þátttöku sinnar í friðsamlegum aðgerðum fyrir utan hús forsætisráðherra Kambódíu í mars 2013. Amnesty International taldi Tep Vanny vera samviskufanga og var mál hennar hluti af alþjóðlegri herferð samtakanna þar sem rúmlega 200.000 einstaklingar um heim allan kölluðu eftir lausn hennar.

