Góðar fréttir: dauðadómar 4000 Keníubúa mildaðir
Dauðadómum um 4.000 Keníubúa var breytt í lífstíðarfangelsi þann 3. ágúst síðastliðinn.
Dauðadómum um 4.000 Keníubúa var breytt í lífstíðarfangelsi þann 3. ágúst síðastliðinn.
Brasilísk samtök þökkuðu Amnesty International nýverið fyrir aðgerð samtakanna, sem leiddi til þess að morðhótunum linnti í garð fátæks bónda og baráttumanns fyrir landréttindum.
Brasilísk samtök þökkuðu Amnesty International nýverið fyrir aðgerð samtakanna, sem leiddi til þess að morðhótunum linnti í garð fátæks bónda og baráttumanns fyrir landréttindum.
Daw Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Mjanmar, var útnefnd samviskusendiherra Amnesty International þann 27. júlí síðastliðinn.
Sú tíð er liðin að ríki séu allsráðandi á alþjóðavettvangi. Hnattvæðingin hefur að miklu leyti fært valdið frá ríkjum til alþjóðastofnana og stórfyrirtækja sem að stórum hluta stýra hagkerfi veraldar.
Íslandsdeild Amnesty International barst nýlega beiðni um umsögn við þingsályktunartillögur er varða aðild Íslands að Evrópusambandinu, 38.mál, aðildarumsókn að Evrópusambandinu, og 54. mál, undirbúningur mögulegrar umsóknar um aðild að Evrópusambandinu.
Nýlega sendi Íslandsdeild Amnesty International utanríkisráðherra Íslands bréf, þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að styðja áfram gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasamnings á vettvangi SÞ.
Stjórnvöld í Tógó ákváðu þann 23. júní síðastliðinn að afnema dauðarefsinguna eftir að þing landsins samþykkti samhljóða frumvarp þess efnis.
Amnesty International hvetur stjórnvöld í Íran þegar í stað til að hætta að nota Basij-sveitirnar, sem tengdar eru stjórnvöldum, til að hafa eftirlit með mótmælum í landinu.
Þúsundir mótmælenda sættu ofbeldi þegar þeir gengu um götur í Íran að loknum forsetakosningum, sem haldnar voru í landinu þann 12. júní síðastliðinn.
Í nýrri skýrslu Amnesty International er greint frá neyð og stórfelldum mannréttindabrotum í óformlegum byggðum Nairobi.
Samviskufanginn dr. Binayak Sen, var leystur úr haldi þann 26. maí eftir að hæstiréttur landsins úrskurðaði að hann skyldi látinn laus gegn tryggingu. Hann hafði þá setið tvö ár í fangelsi.