1.505 niðurstöður

  • Rafbyssur: Afstaða Amnesty International

    Nokkur umræða hefur verið hér á landi að undanförnu vegna hugsanlegra heimilda til handa íslensku lögreglunni til að bera rafbyssur við störf sín. Í ljósi þeirra staðreynda sem fyrir liggja, bæði hættu á misnotkun, fjölda dauðsfalla þar sem rafbyssur koma við sögu og þeirri staðreynd að þær valda miklum sársauka sem getur jafnast á við pyndingar hefur Íslandsdeild Amnesty International lagt áherslu á að íslensk lögregluyfirvöld taki ekki upp rafbyssur hér á landi.

  • Skelfilegt ástand í flóttamannabúðum Palestínumanna

    Yfir 3.000 palestínskir flóttamenn, sem flúið hafa ofbeldið í Írak, búa við skelfilegar aðstæður um þessar mundir. Þeir hafa lítið samband við umheiminn og njóta ekki fullnægjandi mannúðaraðstoðar. Í mars 2008 hittu fulltrúar frá Amnesty International palestínskt flóttafólk sem er innilokað í al-Tanf búðunum á einskis manns landi á landamærum Írak og Sýrlands.

  • Dauðadómur á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum

    Í aðdraganda heimsóknar Mahmoud Abbas til Íslands fór Íslandsdeild Amnesty International þess á leit við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Ólaf Ragnar Grímsson forseta að þau ræddu yfirvofandi aftöku hins 23 ára gamla Tha’er Mahmoud Husni Rmailat og færu fram á að Mahmoud Abbas skrifi ekki undir aftökuskipunina.

  • Mannréttindabrot á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum

    Íslandsdeild Amnesty International hefur sent samhljóða bréf til forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar og utanríkisráðherra Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Í bréfinu er vakin athygli á alvarlegu ástandi mannréttinda á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum og íslenskir ráðamenn hvattir til að taka upp mannréttindamál í viðræðum við Mahmoud Abbas.

  • Dauðarefsingar á alþjóðavettvangi 2007

    Að minnsta kosti 1.200 einstaklingar voru teknir af lífi árið 2007 og ríkisvaldið tekur marga aðra til viðbótar af lífi með leynd í löndum eins og Kína, Mongólíu og Víetnam.

  • Kúba: Baráttufólki fyrir mannréttindum sleppt úr haldi

    Kúbversk yfirvöld hafa sleppt fjórum baráttumönnum fyrir mannréttindum úr fangelsi. Fjórmenningarnir voru handteknir í fjöldahandtökum vegna pólitískrar þátttöku í mars 2003 þar sem alls 75 mótmælendur voru handteknir.

  • Hvíta-Rússland: Blaðamanni sleppt úr fangelsi

    Fyrrum aðstoðarritstjóra hvítrússnesks dagblaðs hefur verið sleppt úr fangelsi fyrr en til stóð. Þann 22. febrúar 2008 mildaði hæstiréttur Hvíta-Rússlands dóminn yfir Alyaksandr Zdzvizhkou úr þremur árum í þrjá mánuði.

  • Gvatemala: Réttarhöld vegna mannshvarfa hefjast

    Fyrstu réttarhöldin í Gvatemala vegna þvingaðra mannshvarfa hófust þar í mars 2008. Felipe Gusanero, sem tilheyrði sveitum tengdum hernum, var ákærður mánudaginn 10. mars fyrir að vera viðriðinn þvinguð mannshvörf sex óbreyttra borgara, með vitund og vilja hersins.