Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn laugardaginn 12. maí kl. 14.00 í Litlu Brekku við Bankastræti.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn laugardaginn 12. maí kl. 14.00 í Litlu Brekku við Bankastræti.
Sunnudaginn 29. apríl er alþjóðadagur í þágu Darfur-héraðs í Súdan. Amnesty International hefur miklar áhyggjur af ástandinu í Darfur.
Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á námskeiði sem efnt verður til laugardaginn 19. maí í húsnæði Símenntunarstöðvar Eyjafjarðar við Þórsstíg 4 á Akureyri.
14.-19. mars varð Íslandsdeild Amnesty International þess heiðurs aðnjótandi að fá Mariselu Ortiz Rivera mannréttindafrömuð í heimsókn.
Árið 1993 hófst alda morða í borginni Ciudad Juárez, sem ekki sér enn fyrir endann á. 400 konur hafa horfið og fundist síðar myrtar. Óþekktur fjöldi kvenna hefur horfið sporlaust. Flest fórnarlambanna eru stúlkur og konur á aldrinum 13-22 ára og meirihluti þeirra stundar nám eða starfar í verksmiðjum fjölþjóðlegra fyrirtækja í borginni.
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti hverfist um alþjóðadag gegn kynþáttamisrétti og miðar að því að uppræta þröngsýni, fordóma og þjóðernishyggju í Evrópu.
Marisela Ortiz Rivera mannréttindafrömuður frá Mexíkó flytur fyrirlestur 15. mars kl. 16:00 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands. Hún hefur á síðustu sex árum barist ötullega gegn refsileysi vegna kvennamorða í borginni Ciudad Juárez í Norður-Mexíkó, þar sem um 400 konur hafa verið myrtar á hrottalegan hátt á síðustu árum.
Hér á eftir fylgir umsögn Íslandsdeildar Amnesty International um frumvarp til laga um íslensku friðargæsluna
Amnesty International birtir í dag nýja skýrslu: People’s Republic of China – Internal migrants: Discrimination and abuse The human cost of an economic miracle.
Íslandsdeild Amnesty International efndi til táknrænnar uppákomu þann 11. janúar kl. 17:00 á Lækjartorgi þar sem blöðrum var sleppt til að undirstrika kröfu Amnesty um að fangar í Gvantanamó verði látnir lausir eða þeir látnir sæta ákæru.
Í janúar 2002 fluttu bandarísk yfirvöld fyrstu fangana í „stríðinu gegn hryðjuverkum“ til bandarísku flotastöðvarinnar við Guantánamo-flóa á Kúbu. Þrátt fyrir að fangabúðirnar hafi verið fordæmdar um heim allan eru þar enn 430 einstaklingar af 35 þjóðernum.
Íslandsdeild Amnesty International lýsir fordæmingu sinni á aftöku Saddam Hussein. Sakadómstóll í Írak kvað upp dauðadóm yfir Saddam Hussein og tveimur samverkamönnum hans eftir meingölluð og óréttlát réttarhöld.