Japönsk stjórnvöld hvött til að hætta aftökum
Þrír menn voru teknir af lífi í Japan fimmtudaginn 11. september. Amnesty International hefur farið fram á það við stjórnvöld í landinu að þau hætti aftökum þegar í stað.
Þrír menn voru teknir af lífi í Japan fimmtudaginn 11. september. Amnesty International hefur farið fram á það við stjórnvöld í landinu að þau hætti aftökum þegar í stað.
Argentína hefur nýlega lagt afnámi dauðarefsingarinnar enn frekara lið með tveimur mikilvægum skrefum. Þau skref koma í kjölfar afnáms dauðarefsingarinnar í landinu.
Hinn 6. desember árið 2006 var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna ályktun 61/89, en með henni var hrundið af stað ferli sem miðar að gerð alþjóðasáttmála um vopnaviðskipti.
Árið 2007 sendu félagar í Amnesty International meira en 11.000 origami hegra til yfirvalda í Hvíta-Rússlandi. Ungir félagar í Amnesty International í Mexíkó bjuggu til risastóran origami hegra sem einnig var sendur til innanríkisráðuneytis Hvíta-Rússlands. Hegrarnir voru hluti af alþjóðlegri herferð sem hvatti lausnar ungs baráttumanns fyrir mannréttindum, Zmitser Dashkevich, en hann var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að „skipuleggja eða taka þátt í aðgerðum óskráðra félagasamtaka“.
Á hverju ári líða milljónir manna fyrir óábyrg vopnasöluviðskipti, um heim allan. Um eitt þúsund einstaklingar láta lífið af vopna völdum á hverjum degi, og enn fleiri særast eða þurfa að þola pyndingar og illa meðferð af hendi vopnaðra aðila. Afleiðingar þessa á innviði samfélagsins eru jafnframt alvarlegar.
Masood Ahmed Janjua, kaupsýslumaður frá Rawalpindi, „hvarf“ þann 30. júlí 2005, þegar hann var í rútuferð til Peshawar með Faisal Faraz, 25 ára verkfræðingi frá Lahore.
Atiq-ur Rehman, 29 ára vísindamaður og starfsmaður kjarnorkunefndar Pakistan, var handtekinn þann 25. júní 2004 í Abbotabad í Norð-Vesturlandamærahéraðinu, á giftingardag sinn.
Í tilefni alþjóðadags til minningar um hina horfnu og ættingja þeirra, er vert að vekja athygli á þessu grófa mannréttindabroti sem teygir anga sína um allan heim.
Sýrlensk yfirvöld slepptu dr. Aref Dalilah óvænt úr haldi þann 7. ágúst eftir að Sýrlandsforseti gaf honum upp sakir. Dalilah er fyrrum deildarforseti hagfræðideildar Aleppo háskóla og kunnur samviskufangi í Sýrlandi.
Helsta starf Amnesty International felst í því að rannsaka mannréttindabrot um heim allan, opinbera þær rannsóknir og berjast fyrir því að mannréttindabrotum linni í heiminum. Sjálfboðaliðar innan Amnesty International eru í fararbroddi þeirrar baráttu.
Mannúðarsamtök greina frá því að þau fái enn ekki að senda hjálpargögn til umdeildu svæðanna í Suður-Ossetíu. Óttast er að borgarar í héraðinu geti orðið sjúkdómum og hungri að bráð.
Kínversk yfirvöld hafa svikið gefin loforð um umbætur í mannréttindum í aðdraganda Ólympíuleikanna. Amnesty International birtir í dag nýja skýrslu um mannréttindaástandið í Kína. Kínversk yfirvöld halda uppteknum hætti og ofsækja og refsa öllum þeim sem fara fram á virðingu fyrir mannréttindum. Yfirvöld hafa misst sjónar á þeim loforðum sem þau gáfu fyrir sjö árum þegar alþjóðlega Ólympíunefndin ákvað að sumarleikarnir 2008 færu fram í Peking.