1.596 niðurstöður

Raða eftir
  • Mannréttindabrot á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum

    Íslandsdeild Amnesty International hefur sent samhljóða bréf til forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar og utanríkisráðherra Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Í bréfinu er vakin athygli á alvarlegu ástandi mannréttinda á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum og íslenskir ráðamenn hvattir til að taka upp mannréttindamál í viðræðum við Mahmoud Abbas.

  • Dauðarefsingar á alþjóðavettvangi 2007

    Að minnsta kosti 1.200 einstaklingar voru teknir af lífi árið 2007 og ríkisvaldið tekur marga aðra til viðbótar af lífi með leynd í löndum eins og Kína, Mongólíu og Víetnam.

  • Eþíópía: Baráttufólki fyrir mannréttindum sleppt úr fangelsi

    Tveimur baráttumönnum fyrir mannréttindum hefur verið sleppt úr fangelsi í Eþíópíu, en þeim hafði verið haldið frá því í nóvember 2005. Daniel Bekele og Netsanet Demissie voru látnir lausir föstudaginn 28. mars eftir að forseti landsins náðaði þá.

  • Heimildamyndin China blue í Amnesty-bíói

    Heimildamyndin China Blue eftir Micha Peled verður sýnd í Amnesty-bíó þriðjudaginn 15. apríl kl. 20.00 í Hinu húsinu (Gamla pósthúsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis).

  • Kúba: Baráttufólki fyrir mannréttindum sleppt úr haldi

    Kúbversk yfirvöld hafa sleppt fjórum baráttumönnum fyrir mannréttindum úr fangelsi. Fjórmenningarnir voru handteknir í fjöldahandtökum vegna pólitískrar þátttöku í mars 2003 þar sem alls 75 mótmælendur voru handteknir.

  • Hvíta-Rússland: Blaðamanni sleppt úr fangelsi

    Fyrrum aðstoðarritstjóra hvítrússnesks dagblaðs hefur verið sleppt úr fangelsi fyrr en til stóð. Þann 22. febrúar 2008 mildaði hæstiréttur Hvíta-Rússlands dóminn yfir Alyaksandr Zdzvizhkou úr þremur árum í þrjá mánuði.

  • Gvatemala: Réttarhöld vegna mannshvarfa hefjast

    Fyrstu réttarhöldin í Gvatemala vegna þvingaðra mannshvarfa hófust þar í mars 2008. Felipe Gusanero, sem tilheyrði sveitum tengdum hernum, var ákærður mánudaginn 10. mars fyrir að vera viðriðinn þvinguð mannshvörf sex óbreyttra borgara, með vitund og vilja hersins.

  • Námskeið fyrir Amnesty-félaga 19. apríl 2008

    Laugardaginn 19. apríl heldur Amnesty International námskeið fyrir félaga. Þar verður m.a. fjallað um starfsaðferðir, markmið og uppbyggingu Amnesty International svo og mannréttindaáherslur samtakanna um þessar mundir.