1.504 niðurstöður

  • Aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi FAGNAÐ!

    Aðgerðahópur gegn kynbundnu ofbeldi fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hafin verði skoðun á því með hvaða hætti megi standa að gerð og framkvæmd heildstæðrar aðgerðaáætlunar gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi hér á landi. 

  • Skrifið meira!’ brýnir fyrrverandi samviskufangi

    “Þið getið ekki ímyndað ykkur hve mikils virði AI var okkur,” sagði Anwar Ibrahim, fyrrum aðstoðarforsætisráðherra Malasíu og frelsaður samviskufangi. “Hið gríðarlega framlag AI er ólýsanlegt.” Í ávarpi sínu til starfsmanna og sjálfboðaliða AI í London, þakkaði hann hreyfingunni fyrir stuðninginn þau sex ár sem hann sat í fangelsi vegna ákæru, sem runnin var af pólitískum rótum. Anwar Ibrahim var handtekinn í herferð fyrir innanríkisöryggi í september 1998, þremur vikum eftir að hann var sviptur embætti sínu í ríkisstjórn. “Þeir brutust inn um dyrnar og æddu um húsið mitt,” sagði hann. Fyrir utan beið hans hópur fjölmiðlamanna. “Þeir voru að sýna mátt sinn,” útskýrði hann. “Ef við getum farið svona með Anwar þá er hinum ekki viðbjargandi.” Brottrekstur hans, sem kom í kjölfar ágreinings um stefnumál við forsætisráðherrann Mahathir Mohamed, varð kveikjan að fjölda kröfugangna þar sem krafist var pólitískra og félagslegra umbóta. Uppspretta vonar Anwar Ibrahim var haldið í einangrunarvist og hann barinn af þáverandi ríkislögreglustjóra, og fékk í fyrstu mjög takmarkað samneyti við fjölskyldu sinni. Konu hans, Dr. Wan Azizah, og börnum, var aðeins leyft að heimsækja hann í 40 mínútur á mánuði. Árum seinna jókst þetta í vikulegar heimsóknir. Þar sem þeim var bannað að koma með minnisblöð og skriffæri, þurfti Wan Azizah – og jafnvel börnin – að leggja á minnið samantektir af fjölmörgum skýrslum og bréfum sem skrifuð voru máli hans til stuðnings. Lögfræðingarnir smygluðu inn skýrslum í vikulegum heimsóknum þeirra. Upplýsingarnar, sagði hann, veittu honum “mikinn styrk og andlega uppörvun.”   Eftir að hafa verið dæmdur í 15 ára fangelsisvist eftir óréttlát réttarhöld, var Anwar Ibrahim sleppt í september 2004, þegar hæstiréttur Malasíu hnekkti fyrri dómi. Um þessar mundir dvelst hann utan Malasíu og heldur fyrirlestra í háskólum í Bandaríkjunum og Bretlandi. En þetta gerir hann ekki af fúsum og frjálsum vilja. “Þeir [stjórn Malasíu] hafa notað dómstólana til þess að meina mér embætti þar til 2008,” sagði hann. “Þeir hafa tekið af mér bílinn minn og lífeyrinn. Það er enginn möguleiki að fá starf.” Þrátt fyrir þessar hömlur, er hann enn mikilvæg persóna í huga almennings í Malasíu. Heimsóknir hans í bæi og sveitir landsins draga að þúsundir einstaklinga. Þrátt fyrir að hann sé ekki virkur í stjórnmálum Malasíu, er hann staðráðinn að það muni breytast í framtíðinni. “Ég mun sannarlega snúa aftur,” sagði hann, “vegna þess að ef ég geri það ekki – og forðast áhættuna á stjórnmálavettvangi Malasíu – þá er ég að gefast upp fyrir þeim.”   Engin veruleg breyting Handtaka og fangelsun Anwars Ibrahim, hleypti af stað miklum mótmælum almennings í Malasíu, sem mörgum hverjum var haldið í skefjum með valdi. Áköll komu í þúsunda tali hvaðanæva að úr heiminum. En Anwar Ibrahim lagði áherslu á að lausn hans væri engan veginn vísbending um verulega breytingu á hugarfari ríkisstjórnarinnar eða afstöðu til  mannréttinda. “Dómskerfið er áfram eins og það var,” sagði hann. “Við höfum [einnig] þúsundir af farandverkafólki í fangelsi í Malasíu – stungið inn aðeins vegna þess að það er farandverkafólk… það er ekki þrælarnir okkar og það á ekki að koma þannig fram við það.” Þrátt fyrir að fréttir af mannréttindabrotum séu vanalega hunsaðar af fjölmiðlum, sem handgengnir eru ríkisstjórninni, voru yfirlýsingar sem gefnar voru út af AI og öðrum mannréttindasamtökum, sem báðu um lausn Anwars Ibrahim, samt dreift um allt land. Áköll sem stuðningsmenn um heim allan senda, skipta gífurlega miklu máli, sagði Anwar Ibrahim, jafnvel þótt þau nái aldrei eyrum almennings. “Þeir [ráðherrar ríkisstjórnarinnar] lesa þessi bréf. Þetta fer í taugarnar á þeim,” sagði hann. Skilaboðin hans til félaga Amnesty International eru skýr: “Skrifið meira, hafið meiri áhrif á þá!”

  • Sýningin ,,Dropar af regni” í göngum Blöndustöðvar í Húnaþingi

    Sýningin ,,Dropar af regni: Amnesty International á Íslandi 30 ára” hefur verið sett upp í göngum Blöndustöðvar í Húnaþingi. Sýningin sem er farandsýning var fyrst sett upp í Ráðhúsi Reykjavíkur, þaðan fór hún í Smáralind og síðan í Öskju, byggingu Háskóla Íslands

  • Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum

    Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum sem hafa kostað almenna borgara lífið og sært fjölda fólks alvarlega. Heimildir herma að sprengjur hafi sprungið á sex neðanjarðar-lestarstöðvum og einni strætisvagnastöð.

  • Aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi

    Á föstudaginn klukkan 8:30 gefst tækifæri til að eiga orðastað viðstjórnvöld um til hvaða aðgerða skuli gripið gegn kynbundnu ofbeldi.Fundurinn er hugsaður sem samræðuvettvangur til að koma að hugmyndum ogathugasemdum en byggt er á drögum að aðgerðaáætlun sem unnar voru í kjölfar16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og fylgir með sem viðhengi.

  • Ársskýrsla Amnesty International 2005

    Í dag, 25. maí, er ársskýrsla Amnesty International birt. Í skýrslunni er að finna ítarlegt yfirlit um ástand mannréttinda í heiminum og úttekt á störfum samtakanna í þágu mannréttinda og fórnarlamba mannréttindabrota. Skýrslan skýrir frá ástandi mannréttinda í 149 löndum,greinir þróun mannréttinda í heiminum á síðasta ári og veitir upplýsingar um rannsóknir og aðgerðir Amnesty International í þágu mannréttinda.

  • Heimildamyndasýning á vegum Amnesty International

    Kæru félagar, Nú, í sumarbyrjun, mun Íslandsdeild Amnesty International sýna þrjár heimildarmyndir þriðjudaginn 24. maí, kl. 20. Allar heimildarmyndirnar eru tengdar baráttunni gegn ofbeldi í garð kvenna. Myndirnar, sem eru á dvd-formi, verða sýndar á tjaldi í sýningarsal á þriðju hæð Alþjóðahússins að Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík (skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu). Sýndar verða þessar heimildarmyndir: Ciudad Juarez and Chihuahua: Search for Justice – heimildarmynd um mannshvörf og morð á ungum konum í Mexíkó, sem stjórnvöld gera fátt til að stöðva. Lives blown apart – heimildarmynd um áhrif stríðsátaka á líf kvenna. Loks verður sýnd heimildarmyndin Sudan: human rights under fire um mannréttindabrot í borgarastyrjöldinni. Myndirnar taka alls um 1 klst í sýningu og eru með ensku tali. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Við viljum hvetja sem flesta Amnesty félaga, og aðra sem hafa áhuga á mannréttindum, til að mæta. Aðgerðahópur 1 hjá Íslandsdeildinni hefur veg og vanda að undirbúningi sýningarinnar. Mætum öll!

  • Uppákoma gegn ofbeldi

    Birting – samtök ungs fólks, ásamt öðrum, standa fyrir uppákomu gegn ofbeldi á Ingólfstorgi næstkomandi föstudag kl. 17. Ofbeldi í hvaða mynd verður þar mótmælt.

  • Dropar af regni

    Nýverið hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur sýningin