Palestínsku sjálfsstjórnarsvæðin: vopnuð átök kynda undir mannréttindabrot
Bardagar milli sveita Hamas og Fatah á Gaza fyrr á þessu ári ollu dauða 350 Palestínumanna. Í kjölfarið hafa fleiri alvarleg brot átt sér stað á Gaza og Vesturbakkanum.
Bardagar milli sveita Hamas og Fatah á Gaza fyrr á þessu ári ollu dauða 350 Palestínumanna. Í kjölfarið hafa fleiri alvarleg brot átt sér stað á Gaza og Vesturbakkanum.
Munkar og aktívistar í Myanmar hafa tjáð Amnesty International að mótmæli gegn ríkisstjórninni hafi verið bæld niður með grimmilegum hætti.
Íslandsdeild Amnesty International hvetur dómsmálaráðherra Björn Bjarnason til að flýta fyrir fullgildingu samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali.
Í framhaldi af nýlegri heimsókn forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar til Kína sendi Íslandsdeild Amnesty International forseta ítarlegt bréf.
Íslandsdeild Amnesty International hefur sent öllum þingmönnum bréf þar sem þeir eru hvattir til að skrifa undir áætlun samtakanna um að binda enda á ölöglegt varðhald í „stríðinu gegn hryðjuverkum“.
Amnesty International hefur stofnað hóp á tengslanetinu Facebook.
Talið er að minnst 500 manns hafi verið handteknir í átökum herforingjastjórnarinnar og mótmælenda í Myanmar.
Laugardaginn 20. október heldur Amnesty International námskeið fyrir félaga. Þar verður fjalla um sögu og uppbyggingu Amnesty International og mannréttindaáherslur samtakanna um þessar mundir. Einnig verður fjallað um þá aðgerðakosti sem í boði eru innan samtakanna og margt fleira (sjá dagskrá neðar).
Aðildarlönd Sambands Suðaustur-Asíuríkja (Association of Southeast Asian Nations, ASEAN) verða að grípa tafarlaust til árangursríkra aðgerða til að vernda réttinn til friðsamlegra mótmæla í Myanmar og forðast frekari stigmögnun ofbeldis og mannréttindabrota.
Talið er að minnst 500 einstaklingar hafi verið handteknir í átökum herforingja-stjórnarinnar og mótmælenda í Myanmar. Samkvæmt heimildum Amnesty International voru um 1160 pólitískir fangar fyrir í fangelsum landsins og fjöldi samviskufanga.
Í dag eru um það bil fjörtíu milljónir manna á vergangi víðsvegar um heiminn. Þetta er fleira fólk en býr á öllum Norðurlöndum til samans og fimmtán milljónum betur. Af öllum þessum milljónum manna leita aðeins um þrjátíu þúsund árlega hælis á Norðurlöndunum.
Alþjóðasamfélagið hefur brugðist og sýnt sinnuleysi gagnvart hinum sívaxandi straumi flóttafólks frá Írak til nágrannalanda. Sýrland og Jórdanía hafa tekið á móti flóttafólki frá Írak á undanförnum árum án þess að fá raunhæfan stuðning alþjóðasamfélagsins.