1.510 niðurstöður

  • Hverjir eru Rohingjar og hvers vegna eru þeir að flýja Mjanmar?

    Rohingjar er minnihlutahópur, aðallega múslimar, sem býr í Rakhine-fylki í vesturhluta Mjanmar við landamæri Bangladess og telja um 1,1 milljón manns. Stjórnvöld í Mjanmar halda því fram að Rohingjar séu hópur af ólöglegum innflytjendum frá Bangladess þrátt fyrir að það hafi búið í Mjanmar í aldaraðir. Þau neita að viðurkenna þá sem ríkisborgara og í reynd er meirihluti þeirra án ríkisfangs. 

  • Úsbekistan: Erkin Musaev laus úr haldi

    Þann 10. ágúst síðastliðinn var fjölskyldu Erkin Musaev boðið að mæta á skrifstofu ríkissaksóknara Úsbekistan þar sem henni var tilkynnt að forseti landsins hafi fyrirskipað lausn Erkin úr fangelsi eftir 11 ár á bak við lás og slá.

  • Við höfum sögur að segja

     „Allir geta verið jákvæðir í garð Amnesty International því samtökin starfa í þágu fólksins en ekki til að hagnast á því,“ segir hinn 26 ára gamli Majid Zarei frá Íran sem hefur búið á Íslandi í rúmt ár og ætlar að hlaupa 3 km í Reykjavíkurmaraþoninu nú á laugardaginn til styrktar Amnesty International.

  • Bandaríkin: Þriggja ára barn leyst úr haldi

    Það markaði tímamót  þegar úrskurðað var að hinn þriggja ára gamli Josué* skyldi leysa úr haldi úr Berks County Residential Center í Pennsylvaníu í síðustu viku. Hann flúði frá Hondúras með tæplega þrítugri móður sinni vegna hótana um mannrán og líkamlega og kynferðislega árás. Þau sóttu síðan um hæli í Bandaríkjunum og hafa verið í haldi í Berks í rúma 16 mánuði. 

  • Undirskriftir í Kringlunni björguðu lífi nígerísks jafnaldra

    „Það var magnað að hitta allt í einu dauðadæmda manninn, sem við höfðum barist fyrir að yrði frjáls. Þarna var hann lifandi, að tala við okkur,” segir Anna Lilja Ægisdóttir en hún ætlar að hlaupa 10 kílómetra í maraþoninu 19. ágúst og safna áheitum fyrir Amnesty International.