Spánn: Hryðjuverkalög notuð gegn háðsádeilum og skapandi tjáningu á netinu
Skýrsla Amnesty International, Tweet…if you dare: How counter-terrorism laws restrict freedom of expression in Spain, sýnir að venjulegir notendur samfélagsmiðla og að auki tónlistarmenn, blaðamenn og jafnvel leikbrúðustjórnendur hafa verið lögsóttir í nafni þjóðaröryggis. Þetta hefur skapað umhverfi þar sem fólk óttast í sívaxandi mæli að tjá óhefðbundnar skoðanir eða segja umdeilda brandara.

