Sádi-Arabía: Staðfesting á dómi yfir Raif Badawi er svartur dagur fyrir tjáningarfrelsið
Ákvörðun hæstaréttar í Sádi-Arabíu um að staðfesta dóminn er bloggarinn Raif Badawi hlaut upp á 10 ár í fangelsi og 1000 svipuhögg er svartur dagur fyrir tjáningarfrelsið í landinu, að sögn Amnesty International.

