Átakanlegar frásagnir af pyndingum, ómannúðlegum aðstæðum og fjöldadauða í sýrlenskum fangelsum
Skelfileg lífsreynsla fanga sem beittir voru hömlulausum pyndingum og annarri illri meðferð í sýrlenskum fangelsum er afhjúpuð í svartri skýrslu Amnesty International. Hóflegt mat gerir ráð fyrir að um 17.723 manns hafi látið lífið í varðhaldi frá því að uppreisnin hófst í Sýrlandi í mars árið 2011 – það eru að meðaltali rúmlega en 300 dauðsföll á mánuði.
