Aðgerð framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins í Tékklandi er sigur fyrir Róma-fólk
Amnesty International fagnar tilkynningu framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins um að hefja málsmeðferð gegn Tékklandi vegna brots á löggjöf sambandsins gegn mismunun. ,,Í mörg ár hefur Amnesty International skráð kerfisbundna mismunun gegn Róma-börnum í tékkneskum skólum. Samt sem áður hafa tékknesk stjórnvöld brugðist því að gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir, takast á við eða ráða bót á málum.

