Mexíkó: 600% aukning á pyndingum og annarri illri meðferð á síðustu tíu árum
Í rúmlega fimm áratugi hefur Amnesty International rannsakað og skrásett pyndingamál í Mexíkó.
Í rúmlega fimm áratugi hefur Amnesty International rannsakað og skrásett pyndingamál í Mexíkó.
Hræðileg upptaka sem sýnir aftöku af hendi vopnaðs hóps á fótboltavelli í austurhluta Líbíu er skýrt dæmi um getuleysi yfirvalda við að koma í veg fyrir öldu ofbeldis og lögleysu, að sögn Amnesty International.
Fyrir stuttu gerðist sá fágæti atburður í Kína að fangi sem hafði verið dæmdur til dauða var sýknaður en hann hafði þurft að sæta sex ára fangelsisvist á meðan hann fór í gegnum nokkrar áfrýjanir.
Íslandsdeild Amnesty International afhenti í gær sendifulltrúa bandaríska sendiráðsins, Paul O’Friel, bréf með 5481 undirskrift.
Tvö bræðrapör úr sömu stórfjölskyldunni voru teknir af lífi fyrr í vikunni í suðausturhluta Najran eftir að hafa verið dæmdir fyrir að hafa „fengið í hendur mikið magn af hassi“. Dómurinn var byggður á þvinguðum játningum fengnum með pyndingum.
Í tilefni Menningarnætur næstkomandi laugardag, 23. ágúst, býður Íslandsdeild Amnesty International gestum og gangandi upp á rjúkandi heitar vöfflur á milli klukkan 14 og 16 að Þingholtsstræti 27. Endilega gangið í bæinn og gæðið ykkur á ljúffengum vöfflum, kakói og kaffi, hlýðið á ljúfa tóna og kynnið ykkur mikilvæg málefni!
Nú, einu ári frá því að egypskar öryggissveitir myrtu yfir 600 mótmælendur á einum degi, hefur ekki einn einasti öryggissveitarmaður verið ákærður. Á sama tíma hefur egypska refsivörslukerfið unnið hratt við að handtaka, ákæra og dæma meinta fylgjendur Morsi, eftir ranglát hópréttarhöld.
Úrskurður Mannréttindadómstóls Ameríkuríkja um að yfirvöld í Gvatemala hafi brugðist því að rannsaka hörmulegt morð á unglingsstúlku sendir sterk skilaboð til stjórnvalda um heim allan að ofbeldi gegn konum verður ekki umborið.
Allt frá því í júní 2014 hafa samtök sem nefna sig Íslamska ríkið sótt í sig veðrið í norðurhluta Írak og hundruð þúsunda einstaklinga sem tilheyra trúarhópum í minnihluta hafa neyðst til að flýja heimili sín.
Samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International hafa þúsundir afganskra borgara látið lífið í aðgerðum Atlandshafsbandalandsins og bandarískra hersveita, án þess að fjölskyldur hinna látnu hafi séð réttlætinu fullnægt.
Íslandsdeild Amnesty International tók þátt í Gleðigöngu Hinsegin daga en ungliðahreyfing deildarinnar hafði skipulagt atriði sem þau sýndu á táknrænan hátt á Amnesty vagni. Þau settu þar á svið atriði sem vakti athygli á mannréttindabrotum gegn á hinsegin fólki sem víða eru viðhöfð í heiminum.
Hryllileg myndskeið, ljósmyndir og vitnisburðir sem Amnesty International hefur tekið saman, varpa ljósi á ný sönnunargögn um stríðsglæpi, þar á meðal aftökur án dóms og laga og önnur alvarleg mannréttindabrot í Norðaustur-Nígeríu.