Tilkynning til félaga um breytingar á félagafjölda
Á heimsþingi Amnesty International í ágúst 2015 var samþykkt ályktun um að stjórn alþjóðasamtakanna marki stefnu varðandi mannréttindi vændisfólks. Í þeim mánuði hætti hópur fólks að starfa með Íslandsdeild samtakanna. Flestir í þessum hópi hættu á næstu dögum eftir að ályktunin var samþykkt þ.e. á tímabilinu 11.-20. ágúst síðastliðinn.
