1.507 niðurstöður

  • Fimm algengar mýtur um pyndingar

    Alþjóðlegur dagur til stuðnings fórnarlömbum pyndinga er 26. júní ár hvert. Í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá því að samningurinn um bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð tók gildi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna hefur Amnesty International ýtt úr vör herferð gegn pyndingum.

  • Dauðadómur kínverskrar konu dreginn til baka

    Hæstiréttur Kína kallaði nýverið eftir endurupptöku á máli Li Yan,43 ára konu, sem var dæmd til dauða fyrir morð á ofbeldisfullum eiginmanni sínum. Málið fékk gífurlega athygli innanlands sem utan þar sem þrýst var á yfirvöld að draga dauðadóm hennar til baka. Íslandsdeild Amnesty International tók upp mál hennar í janúar 2013 í netákalli.

  • Langþráður draumur orðinn að veruleika

    Frumbyggjasamfélaginu Sawhoyamaxa hefur verið veittur réttur til að snúa aftur til lands síns eftir að forseti Paragvæ skrifaði undir lög 11. júní um endurheimtingu lands þeirra. Þetta er stór sigur fyrir samfélagið sem hefur barist fyrir réttindum sínum í rúm 20 ár. 

  • Fótboltamót án brota í Brasilíu

    Að sögn Amnesty International eiga mótmælendur í Brasilíu sem gripið hafa til aðgerða í aðdraganda heimsmeistarakeppninnar í fótbolta á hættu að sæta ofbeldi af höndum lögreglu og hervaldsins í viðleitni þeirra til að bæla niður mótmælin.

  • Mögnuð ljósmyndasýning Ástu Kristjánsdóttur opnuð!

    Íslandsdeild Amnesty International og Ásta Kristjánsdóttir ljósmyndari tóku höndum saman við gerð ljósmyndasýningarinnar Minn líkami, Mín réttindi sem opnar þann 11. júní klukkan 17:00 í sýningarsalnum Gym&Tonic á Kex Hostel. 

  • Enga ólögmæta leiki í Brasilíu!

    Í aðdraganda Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í Brasilíu hafa átt sér stað fjölmenn mótmæli sem lögregluyfirvöld hafa svarað með afli, og í sumum tilvikum beitt táragasi og gúmmíkúlum.

  • „Það er ekkert réttlæti lengur í þessu landi“ 

    „Velkominn í þorp dauðadómanna“, sagði lögfræðingurinn Ahmed Shabeeb við komu mína í þorpið Mattay fyrir stuttu. Ég fór þangað í þeim tilgangi að hitta nokkrar fjölskyldur þeirra 528 einstaklinga sem áttu að fá staðfestingu á dómum sínum daginn eftir, m.a. dauðadómum fyrir meinta þátttöku í pólitísku ofbeldi á síðasta ári.