1.507 niðurstöður

  • Minn líkami, mín réttindi!

    Allir hafa kynlífs- og frjósemisréttindi.  Ríkisstjórnum er skylt að tryggja að allir geti notið þessara réttinda án ótta, þvingana eða mismununar.

  • Ungliðahreyfing Amnesty sýnir pyndingaraðferðir

    26. júní er alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum pyndinga. Af því tilefni stendur Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International fyrir aðgerð, laugardaginn 29. júní frá 13 til 15 á Austurvelli þar sem sýndar verða ólíkar pyndingaraðferðir sem beitt hefur verið víðs vegar um heiminn.

  • Góð frétt: Beatriz frá El Salvador ekki lengur í lífshættu!

    Yfirvöld í El Salvador tóku nýverið ákvörðun um að veita Beatriz leyfi fyrir snemmbúnum keisaraskurði og bjarga þar með lífi hennar. Líkt og læknar höfðu spáð fyrir um lifði barnið aðeins í nokkrar klukkustundir eftir fæðinguna, enda vantaði í það stóran hluta heilans og höfuðkúpunnar. Beatriz hafði verið meinað um löglega fóstureyðingu sökum fortakslauss fóstureyðingabanns í El Salvador. Hún þjáðist af lífshættulegum vandamálum tengdum meðgöngunni. SMS-félagar og félagar í netákallinu gripu til aðgerða og þrýstu á stjórnvöld í El Salvador um að veita Beatriz lífsnauðsynlega læknisaðstoð í samræmi við óskir hennar og tilmæli heilbrigðisstarfsfólks. Amnesty International þakkar öllum þeim sem tóku þátt í aðgerðinni kærlega fyrir þátttökuna. UNDIRSKRIFT YKKAR SKIPTIR MÁLI!

  • Nemendur í Hagaskóla styrkja Amnesty!

    Nemendur í Hagaskóla söfnuðu rúmlega 2,2 milljónum króna á góðgerðardeginum Gott mál í Hagaskóla sem haldinn var 17. apríl síðastliðinn. 

  • Frábærar fréttir frá Papúa Nýju-Gíneu!

    Í apríl gripum við til aðgerða vegna þriggja kvenna, sem voru í haldi þorpsbúa í þorpi á Papúa Nýju-Gíneu vegna ásakana um að þær stunduðu „galdra“.