Örfá ríki standa að baki flestum aftökum
Samkvæmt ársskýrslu Amnesty International árið 2013 um dauðarefsinguna jókst aftökufjöldi í Íran og Írak mjög á síðasta ári þrátt fyrir að aukning sé í átt til afnáms dauðarefsingarinnar á heimsvísu.
Samkvæmt ársskýrslu Amnesty International árið 2013 um dauðarefsinguna jókst aftökufjöldi í Íran og Írak mjög á síðasta ári þrátt fyrir að aukning sé í átt til afnáms dauðarefsingarinnar á heimsvísu.
Ég hef ekki orðið vitni að jafn mikilli vanrækslu mannréttinda og skorti á virðingu í landinu á allri minni ævi.
Þremenningarnir sem sættu þvinguðu mannshvarfi á Krímskaga hafa verið leystir úr haldi. Mál þeirra var tekið upp í sms-aðgerðaneti okkar nýverið.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn föstudaginn 28. mars 2014.
Fjórir hermenn sem kærðir voru fyrir pyndingar og kynferðislegt ofbeldi gegn tveimur konum í Mexíkó hafa verið hnepptir í varðhald og verða dregnir fyrir dómstól.
Þann 15. mars næstkomandi verða þrjú ár liðin frá því átökin hófust í Sýrlandi. Um heim allan ætlar fólk að koma saman og sýna íbúum Sýrlands stuðning sinn í verki.
Ný skýrsla Amnesty International sýnir að stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyni hafa verið framdir á sýrlenskum og palestínskum borgurum í flóttamannabúðunum Yarmouk við útjaðar Damaskus, sem sýrlenski stjórnarherinn hefur á sínu valdi.
Jabeur Mejri var leystur úr haldi þann 4. mars síðastliðinn. Hann er túnískur samviskufangi sem var tvö ár í fangelsi fyrir að birta greinar á netinu og skopmyndir sem sagðar voru móðgun við íslam.
Kemstu ekki á tónleikana en langar samt að styðja við hinsegin fólk í Úganda?
Fimmtudaginn 6. mars ætla Samtökin ’78 & Íslandsdeild Amnesty International, ásamt nemum í tómstunda- og félagsmálafræði að standa fyrir styrktartónleikum.
Hinsegin fólk í Úganda hefur lengi glímt við mikla fordóma og ofbeldi, hvort sem er af hálfu almennings eða stjórnvalda.
Þú getur lagt þitt af mörkum! Með því að mæta á sýningu myndarinnar, Call me Kuchu í Bíó Paradís þann 27. febrúar klukkan 18:00 og taka þátt í umræðum um ástand mannréttindamála hinsegin fólks í Úganda að sýningu lokinni.