Minn líkami, mín réttindi!
Allir hafa kynlífs- og frjósemisréttindi. Ríkisstjórnum er skylt að tryggja að allir geti notið þessara réttinda án ótta, þvingana eða mismununar.
Allir hafa kynlífs- og frjósemisréttindi. Ríkisstjórnum er skylt að tryggja að allir geti notið þessara réttinda án ótta, þvingana eða mismununar.
26. júní er alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum pyndinga. Af því tilefni stendur Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International fyrir aðgerð, laugardaginn 29. júní frá 13 til 15 á Austurvelli þar sem sýndar verða ólíkar pyndingaraðferðir sem beitt hefur verið víðs vegar um heiminn.
Yfirvöld í El Salvador tóku nýverið ákvörðun um að veita Beatriz leyfi fyrir snemmbúnum keisaraskurði og bjarga þar með lífi hennar. Líkt og læknar höfðu spáð fyrir um lifði barnið aðeins í nokkrar klukkustundir eftir fæðinguna, enda vantaði í það stóran hluta heilans og höfuðkúpunnar. Beatriz hafði verið meinað um löglega fóstureyðingu sökum fortakslauss fóstureyðingabanns í El Salvador. Hún þjáðist af lífshættulegum vandamálum tengdum meðgöngunni. SMS-félagar og félagar í netákallinu gripu til aðgerða og þrýstu á stjórnvöld í El Salvador um að veita Beatriz lífsnauðsynlega læknisaðstoð í samræmi við óskir hennar og tilmæli heilbrigðisstarfsfólks. Amnesty International þakkar öllum þeim sem tóku þátt í aðgerðinni kærlega fyrir þátttökuna. UNDIRSKRIFT YKKAR SKIPTIR MÁLI!
Aðgerðarleysi í mannréttindamálum á heimsvísu gerir að verkum að heimurinn verður sífellt hættulegri fyrir flóttamenn og farandfólk að mati Amnesty International
Nemendur í Hagaskóla söfnuðu rúmlega 2,2 milljónum króna á góðgerðardeginum Gott mál í Hagaskóla sem haldinn var 17. apríl síðastliðinn.
Yfir 80 fangar í fangabúðum Bandaríkjastjórnar í Gvantanamó á Kúbu eru í hungurverkfalli og fjöldinn eykst stöðugt.
Í apríl gripum við til aðgerða vegna þriggja kvenna, sem voru í haldi þorpsbúa í þorpi á Papúa Nýju-Gíneu vegna ásakana um að þær stunduðu „galdra“.
Margir blaðamenn, sem fjallað hafa um mannréttindabrot í Sýrlandi, hafa verið drepnir, sætt geðþóttahandtökum eða þvinguðum mannshvörfum
Kasha Jacqueline Nabagesera er mikilvirt baráttukona fyrir réttindum hinsegin fólks í Úganda en þar í landi er samkynhneigð bönnuð með lögum. Víða í Afríku nýtur hinsegin fólk ekki mannréttinda og í nokkrum löndum í álfunni liggur dauðarefsing við samkynhneigð.
Síðla dags í gær, þann 2. apríl 2013, samþykktu ríkisstjórnir heimsins alþjóðlegan vopnaviðskiptasamning með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Búist er við að ríki heimsins muni koma sér saman og samþykkja alþjóðlegan vopnaviðskiptasáttmála á yfirstandandi ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna fyrir fimmtudaginn 28. mars 2013.
Baráttukonan Mao Hengfeng var síðast dæmd í „endurmenntun gegnum vinnu“ þann 30. október 2012. Hún hefur nokkrum sinnum áður sætt varðhaldi og fangelsun fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum.