dauðarefsingin árið 2025
Tölur og staðreyndir
Aukning aftaka
2.707 aftökur í 17 löndum árið 2025 að undanskildu Kína, Norður-Kórea og Víetnam.
Þetta er 78% aukning frá árinu 2024 (1.518).
- Kína framkvæmir flestar aftökur á heimsvísu. Talið er að þær skipti þúsundum en tölurnar eru ríkisleyndarmál.
- Víetnam og Norður-Kórea. Engar tölur þaðan en talið er að þar séu fjölmargar aftökur.
Þetta er mesti fjöldi aftaka í heiminum síðan árið 1981.
Flestar aftökur eftir löndum í þessari röð: Kína (þúsundir), Íran (2.159+), Sádi-Arabía (365+), Jemen (51+) og Bandaríkin (47)
Flestar aftökur eftir löndum

Skýrsla Amnesty International
Dauðarefsingin árið 2025
á ensku
Brot á alþjóðalögum
1.257 ólögmætar aftökur fóru fram á árinu fyrir vímuefnatengd brot sem er 46% allra aftaka á heimsvísu:
- í Kína (Ekki vitað með fjölda)
- Í Íran (998 aftökur sem eru 46% allra aftaka)
- Í Sádi-Arabíu (240 aftökur sem eru 67% allra aftaka)
- Í Singapúr 158 aftökur sem eru 88% allra aftaka).
- Í Víetnam (Ekki vitað með fjölda en talið er að aftökur fyrir slík brot hafi átt sér stað)
Aftökur einstaklinga undir 18 ára aldri þegar brotið var framið:
- Ein aftaka í Íran
- Tvær aftökur í Sádi-Arabíu
17 opinberar aftökur sem vitað er um:
- 6 í Afganistan
- 11 í Íran
Aðferðir við aftökur

Dauðadómar á heimsvísu
Mildun dauðadóma og náðanir
Einn fangi sem voru dæmdir til dauða voru hreinsaðir af sök í:
- Bandaríkjunum
24 lönd náðuðu einstaklinga dæmda til dauða eða milduðu dauðadóma samkvæmt gögnum Amnesty International.
Í lok árs 2025 voru 25.508 einstaklingar á dauðadeildum allan heim.
Dauðadómar kveðnir upp

Afnám dauðarefsingarinnar
113 lönd hafa afnumið hana að fullu í lok árs 2025.
145 lönd hafa afnumið hana í lögum eða framkvæmd í lok árs 2025.
Árið 2025 afnam Gambía dauðarefsinguna fyrir morð, landráð og önnur brot gegn ríkinu.

Beiting dauðaefsingarinnar
eftir heimshlutum
Mið-Austurlönd og Norður-Afríka
34% aukning aftaka milli ára.
- 1.442 aftökur árið 2024 og 2.611 árið 2025.
Sjö lönd framkvæmdu aftökur árið 2024: Egyptaland, Íran, Írak, Kúveit, Sádi-Arabía, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Jemen. Aftökur í Sameinuðu arabísku furstadæmunumí fyrsta sinn frá árinu 2021.
Íran framkvæmdi flestar aftökur á svæðinu árið 2025.
- Íran framkvæmdi 2.159 aftökur sem er 82% allra aftaka á svæðinu og mesti fjöldi aftaka sem Amnesty International hefur skráð í Íran frá árinu 1981.
Aftökur í Sádí-Arabíu aldrei fleiri: 356 árið 2025 en 345 árið 2024.
Jákvætt:
- Fækkun dauðadóma: Á árinu 2025 voru 743 nýir dauðadómar kveðnir upp en 773 árið 2024.
- Ráðherranefnd Líbanon studdi frumvarp um afnám dauðarefsingarinnar.
Asía og Kyrrahafið
Enn og aftur var mesti fjöldi aftaka á þessu svæði í heiminum.
796 dauðadómar voru kveðnir upp á árinu 2025 sem vitað er um.
Aftökur í sjö löndum (tveimur fleiri en árið 2024):
- Afganistan
- Kína
- Japan (aftökur hófust á ný eftir hlé)
- Norður-Kóreu
- Singapúr (tvöföldun miðað við árið 2024)
- Taívan
- Víetnam
Jákvætt:
- Víetnam afnam dauðarefsinguna í tengslum við átta brot.
Afríka sunnan Sahara
Aftökur í Sómalíu og Suður-Súdan.
- 18 aftökur árið 2025 en 34 árið 2024.
74% aukning á dauðadómum: 771 árið 2025 en 443 árið 2024.
Jákvætt:
- Fjöldi skráðra aftaka dróst saman um 47%
- Dauðadómar voru kveðnir upp í 13 löndum árið 2025 sem er einu færri en árið 2024.
- Gambía, Líbería og Nígería tóku jákvæð skref í átt að afnámi dauðarefsingarinnar.
Norður- og Suður-Ameríka
17. árið í röð voru Bandaríkin eina landið á þessu svæði sem tók fólk af lífi.
Mesti fjöldi aftaka frá árinu 2009 í Bandaríkjunum: 47 árið 2024 en 25 árið 2024.
11 ríki Bandaríkjanna framkvæmdu aftökur árið 2025 en 9 árið 2024. Flórída átti stærstan þátt í aukningu aftaka með 19 aftökur.
Jákvætt:
- Trínidad og Tóbagó og Bandaríkin voru einu ríkin sem kváðu upp dauðadóma á árinu.
Evrópa og Mið-Asía
Belarús er eina landið í Evrópu til að beita dauðarefsingunni en þar voru engir dauðadómar eða aftökur árið 2025.
- Þetta er fyrsta árið frá því að Alexander Lukashenko tók við forsetaembætti þar í landi sem það hefur gerst.
Jákvætt:
- Engir dauðadómar eða aftökur voru skráð í Evrópu eða Mið-Asíu.
- Í Rússlandi og Tadsíkistan var áframhaldandi aftökuhlé.






